Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2008, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 9. APRlL 2008
Fréttir DV
Dæmdurfyrir
fíkniefnabrot
Héraðsdómur Reykjavíkur
dæmdi í dag Brynjar Bergmann
Guðmundsson, 20 ára, í eins
mánaðar skilorðsbundið fangelsi
íyrir vörslu fíkninefna. Brynj-
ar var tekinn með 114 grömm af
marijúana að kvöldi mánudagsins
15. október í fyrra í Bökkunum í
Reykjavík. Brynjar ætlaði að selja
efnin. Brynjar játaði brot sitt fyrir
dómi. Hann hefur áður hlotið
dóma fyrir fikniefnalagabrot og
þjófnað. Með hliðsjón af skýlausri
játningu mannsins, magni efn-
anna og þess að þau voru ætluð til
sölu þótti hæfileg refsing fangelsi í
einn mánuð. Þá voru gerð upptæk
grammavog, skæri og 17 þúsund
krónur sem lögregla lagði hald á
við rannsókn málsins.
Bylting
ísamgöngum
„Þetta er bylting," segir
Halldór Halldórsson, bæj-
arstjóri ísafjarðarbæjar, af
því tilefni að í gær var und-
irritaður samningur vegna
jarðgangagerðar milli Bol-
ungarvíkur og Hnífsdals.
„Jarðgöngin hafa þá þýðingu
að þessi byggðarlög færast
enn nær hvert öðru og styrk-
ir okkur sem heild," segir
Halldór. Hnífsdalur tilheyr-
ir ísafjarðarbæ en Bolungar-
víkurkaupstaður er sjálfstætt
sveitarfélag. Kristján Möller
samgönguráðherra var við-
staddur undirritunina.
Samborgararnir
beittir ofbeldi
Ríkisstjómin má aldrei gerast
sekum að leyfa hávæmm minni-
hlutahópi að kúga sig til hlýðni.
Þetta kemur fram í ályktun Heim-
dalls, félags ungra sjálfstæðis-
manna, sem harmar mótmæla-
aðgerðir atvinnubílstjóra: „Hver
sem málstaðurinn kann að vera
er aldrei rétdætanlegt að brjóta
á samborgurum sínum og beita
þá ofbeldi, skerða frelsi þeirra og
stofna umferðaröryggi í hættu,"
segja Heimdellingar. Þeir fagna
þó mjög vitundarvakningu al-
mennings um stefnu Sjálfstæðis-
flokksins í tengslum við álögur á
eldsneyti.
Krakkar krota
Lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu gómaði unga veggja-
krotara en þeir höfðu úðað á
tvö hús þegar þeir náðust. Pilt-
arnir em báðir á grunnskóla-
aldri en þeir hafa að öllum
líkindum komistyfir úðabrúsa
á heimili annars þeirra. Pilt-
arnir úðuðu meðal annars á
eitt íbúðarhús. Þegar lögregl-
an kom á vettvang neitaði
annar pilturinn með öllu að
segja til nafns en hinn var öllu
samstarfsfúsari. Föður þess
síðarnefnda bar fljótt að og var
honum gerð grein fyrir mál-
inu. Að því loknu var haldið að
heimili þess fyrrnefnda og rætt
við móður hans. Vel gekk að ná
veggjakrotinu af íbúðarhúsinu
en óvíst var með hitt húsið.
Körfuboltamaðurinn Dimitar Karadzovski hefur verið handtekinn ásamt unnustu sinni
eftir að meint þýfi fannst á heimili hans í Garðabæ. Hann er sakaður um að hafa stolið
frá samherjum sinum yfir hálfs árs tímabil. Samlandi Dimitars, kona, var einnig gripin
með þýfi i fórum sínum á leið út úr landinu. Hún er grunuð um aðild að málinu.
„Þetta er bara ótrúlegt mál," segir
Gunnar Kr. Sigurðsson, formaður
körfuknatdeiksdeildar Stjörnunn-
ar. Stjórnin tilkynnti meintan þjófn-
að eins liðsmanna körfuboltaliðsins
til lögreglunnar í fyrradag. Um er að
ræða makedónska körfuknattíeiks-
manninn Dimitar Karadzovski.
Hann var í kjölfarið handtekinn á
heimili sínu ásamt kærustu en þar
fannst einnig nokkuð af þýfi.
Yfirmaður auðgunar- og fjár-
svikadeildar lögreglunnar, Úmar
Smári Ármannsson, segir aðal-
lega smáhluti hafa fundist heima
hjá Dimitar eins og símar og skart.
Grunur leikur á að Dimitar hafi
sent þýfið til Makedóníu.
Liðsmenn funduðu
Lögregla leitaði á heimili Dimit-
ars á mánudagskvöld. Áður höfðu
liðsmenn meistaraflokks Stjörn-
unnar í körfubolta fundað um
hvað gera þyrfti. Þeir höfðu orðið
varir við smáþjófnaði á síðastíiðn-
um mánuðum en þá hurfu iðulega
símar og smáskart. Sjálfir grunuðu
þeir aldrei eigin liðsmann. Þeir
töldu óprúttna aðila hafa farið inn
í klefann og bjuggust í raun við að
tilvikin væru einangruð. Svo virð-
ist sem tvær grímur hafi farið að
renna á liðsmenn að lokum þeg-
ar smáþjófnaðirnir stoppuðu ekki.
Að lokum tilkynnti stjórn félagsins
þjófnaðinn til lögreglu.
„Þetta eralgjörlega
óskiljanlegt."
Körfuboltamenn
vildu dótið til baka
Samherjar Dimitars fóru heim
til hans áður en lögreglan mætti
á svæðið. Þá óskuðu þeir eftir því
að Dimitar léti þá fá þýfið til baka.
Ekkert gekk og lögreglan var kölluð
á staðinn. Lögreglan gerði húsleit
heima hjá honum og fann talsvert
af þýfi. Verðmæti þess fékkst ekki
geflð upp.
Dimitar var í kjölfarið handtek-
inn ásamt kærustu sinni sem er
samlandi hans en sjálf spilar hún
körfuknattleik hjá Fjölni. Ekki er
vitað um þátt hennar í málinu en
þegar rætt var við heimildarmenn
sagði einn að hún hefði ekki vitað
af athæfi Dimitars. Hann hefði í
raun reynt að leyna hana því.
Óskiljanlegt
„Þetta er algjörlega óskiljan-
legt," segir Gunnar Kr. Sigurðsson,
formaður körfuknattíeiksdeildar
Stjörnunnar. Samningi við Dimitar
var umsvifalaust sagt upp einhliða
af Stjörnunni þegar upp um brotið
komst. Ibúðin sem Dimitar dvaldi
í var einnig á vegum félagsins sem
og sími Dimitars. Hann var sviptur
öllum þessum forréttindum eftir
að hann var handtekinn.
Einn heimildarmaður sem DV
ræddi við sagði að kona frá Make-
dóníu hefði verið gripin með far-
síma og skart í fórum sínum á leið
sinni úr landi. Tilgangurinn hafi
SAGÐUR STELA
FRA FELOGUM
riiniii
verið að koma þýfinu í verð í Make-
dóníu.
Yfirheyrð í gær
Þegar rætt var við lögregluna
var ekki búið að yfirheyra parið en
þá var beðiO eftir túlki. Þá var ekki
ljóst hvort Dimitar yrði hnepptur
í gæsluvarðhald eða úrskurðað-
ur í farbann vegna málsins. Málið
er í raun á frumstigi í rannsókn en
Ómar Smári bjóst frekar við að yf-
irheyrslum myndi ljúka í gær frek-
ar en í dag.
Dimitar starfaði, auk þess að
spila körfubolta, í Hofsstaðaskóla í
Garðabæ. Áður en Dimitar byrjaði
að spila körfu með Stjörnunni spil-
aði hann með Skallagrími í Borgar-
nesi.
Kostnaður við leiguflug nemur 6,9 milljónum króna:
Ríkið fær þóknun Geirs Haarde
Memorial-háskólinn greiðir
þóknun fyrir fyrirlesturinn sem Geir
H. Haarde forsætisráðherra heldur
í Memorial-háskólanum í Kanada í
næstu viku. Geir nýtur þó ekki góðs
af þóknuninni sem skólinn greiðir
fyrirlesurum sínum heldur rennur
þóknunin til forsætisráðuneytisins.
Ferð Geirs til Kanada í næstu viku
er sú þriðja sem hann fer til útlanda
í þessum mánuði. Tvær fyrri ferðirn-
ar hefur hann, ásamt föruneyti, far-
ið með leigðum einkaþotum í stað
áætlunarflugs. Þriðja ferðin verður
hins vegar flogin með áætíunarflugi
og borgar Memorial-háskólinn fyr-
irþað.
Samkvæmt upplýsingum sem
fengust frá forsætisráðuneytinu í gær
kostar leigan á flugvél til að fara á
Nató-fund í Búkarest í byrjun mán-
Þrjár utanlandsferðir Forsætisráðherra fer þrisvar utan á hálfum mánuði, tværferð-
ir eru farnar með leigðum einkaþotum en sú þriðja með áætlunarflugi á kostnað
kanadísks háskóla.
aðarins 4,2 milljónir króna og er því
lýst sem einstöku kynningarverði í
bréfi frá forsætisráðuneytinu. Gréta
Ingþórsdóttir, aðstoðarmaður Geirs,
segir að kostnaður við áætíunarflug
og annað sem hefði fallið til með
þeim hætti hefði numið 3,7 millj-
ónum króna. Þá hafi verið áætíað
að vinnutap og dagpeningar hefðu
numið samtals 300 þúsund krónum
með áætlunarflugi.
Jetstream-flugvélin sem var leigð
til fararinnar til Norður-Svíþjóðar
kostar 2,7 milljónir króna í leigu en
áætíunarflug hefði kostað 1,1 milljón
króna. Sparnaður við hótelkosmað
og dagpeninga er metinn á 370 þús-
und krónur og vinnusparnaður á 360
þúsund krónur. Því er kostnaðarauk-
inn 850 þúsund krónur.
brynjolfur@dv.is