Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2008, Blaðsíða 60

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2008, Blaðsíða 60
60 MIÐVIKUDAGUR 9. APRfL 2008 Fókus DV SÍÐUSTU HÁSKÓLATÓNLEIKARNIR Á síðustu háskólatónleikum skólaárins sem fram fara í dag flytja AUÐUR GUNNARSDÓTT- IR sópransöngkona og JÓNASINGIMUNDARSON pfanóleikari lög eftir Jónas, ATLA HEIMI SVEINSSON, JÓN ASGEIRSSON og þjóðlög í útsetningum ÞORKELS SIGURBJÖRNSSONAR. Tónleikarnir hefjast kl. 12.30 og fara fram í Norræna húsinu. Aðgangseyrir er 1000 kr., 500 kr. fyrir eldri borgara og öryrkja en ókeypis fyrir nemendur Háskóla (slands. V.: Hlé í Salnum Hörn Hrafnsdóttur mezzósópran- söngkona flytur sönglagaflokkinn Hlé eftir Gunnar Reyni Sveinsson á tónleikum í Salnum annað kvöld klukkan átta. Nokkur laganna hafa áður verið flutt á tónleikum, í út- varpi og sjónvarpi, en um frumflutn- ing verður að ræða á sumum þeirra, auk þess sem þetta er í fyrsta sinn sem ljóðaflokkurinn verður fluttur í heild sinni. Meðleikari Harnar á þessum tónleikum er Antonía He- vesi. Eftir hlé verður skipt um gír en þá verður farið yfir í óperutónlist og fluttar aríur, meðal annars eftir Bizet og Verdi. ÞJODÞRIFAVERK Heimsljós í Fótógrafí Heimsljós - portrettmyndir frá þróunarlöndum eryfirskrift ljós- myndasýningar sem opnuð var um síðustu helgi í ljósmyndagall- eríinu Fótógrafí við Skólavörðu- stíg. Þar sýnir Gunnar Salvarsson, útgáfu- og kynningarstjóri Þró- unarsamvinnustofnunar íslands, svarthvítar portrettmyndir sem teknar hafa verið á síðustu tveim- ur árum í sex samstarfslöndum Islendinga í alþjóðlegri þróun- arsamvinnu: Malaví, Mósambík, Namibíu, Úganda, Níkaragva og Srí Lanka. Þetta er íyrsta einka- sýning Gunnars en hann hefur áður tekið þátt í samsýningum bæði hér heima og erlendis. , V ________ J 'U: Raðmorðinginn geðþekki Dexter Morgan hefur heillað ófáa upp úr skónum í spennuþáttunum Dexter á SkjáEinum. Annar árgangur þess- ara bráðskemmtilegu þátta rann sitt skeið á sunnudag þannig að blóðþyrstir aðdáendur morðingj- ans glíma margir hverjir við erflð fráhvarfseinkenni þessa dagana. Dexter er morðóður en réttíæt- ir blóðug þjóðþrifaverk sín með því að sálga einungis þeim sem eiga það skilið, morðingjum og barnan- íðingum. Við komumst því ekki hjá því að halda með honum þar sem auðvelt er að fallast á að ógeðsleg iðja hans sé göfug, auk þess sem hann er svo snyrtilegur, góður við dýr og börn og þægilegur í viðkynn- ingu. Hann er hvers manns hugljúfi þótt undir sléttu yfirborðinu leynist sálarlaus skepna sem er gersneydd öllum mannlegum tilfmningum, eða því sem næst. Hann leikur bara venjulega manneskju svo vel að honum tekst að slá ryki bæði í augu flestra í kringum sig og lesenda og áhorfenda. Með því að leita beint í frum- heimildina og lesa bækur banda- ríska rithöfundarins Jeffs Lindsay um Dexter má sækja sér ágæta smá- skammtalækningu við fráhvörfun- um. Ekki síst þar sem svo heppilega vill til að við lok fyrstu þáttaraðar- innar skilja leiðir Dexter-bókanna og fulltrúa hans á skjánum. Það gerir manni því síður en svo óleik að hafa horft á aðra þáttaröð- ina áður en bók númer tvö í flokkn- um er lesin. Þar lendir Dexter í allt öðruvísi og svakalegri ævintýrum en í sjónvarpinu þannig að hér er um hreinan og kláran bónus að ræða auk þess sem lesturinn opnar fyrir dýpri skilning á snældubilaðri persónunni. I Dearly Devoted Dexter glímir lögreglan í Miami við óvenju sjúkan glæpamann sem tungusker fórnar- lömb sín og bútar þau í sundur án þess að drepa þau. Hann skilur svo við þau sem ómálga kjötklessur fyr- ir yfirvöld að eiga við. Lögreglan nýtur vitaskuld hjálp- ar blóðmeinafræðings síns, Dexters, DEARLY DEVOTED DEXTER JEFF LINDSAY ★★★★ BOKADOMUR við rannsóknina enda hefur komið á daginn að ljúflingurinn Dexter á einstaklega auðvelt með að setja sig inn í hugarheim raðmorðingja. Þegar hringurinn um skurðglaða illmennið þrengist þurfa Dexter og höfuðandstæðingur hans hjá lög- reglunni, Doakes, að snúa bökum saman til þess að hafa hendur í hári hans. Dexter sér sér um leið leik á borði þar sem hann getur um leið losað sig við Doakes sem er sá eini sem sér í gegnum leikaraskap hans og grunar hann um græsku. Þrátt fyrir þessa viðleitni Dexters skín geðveikin í gegn í bókunum og þar er öllu myrkara yfir kauða en í sjónvarpinu. Voðaverk hans eru líka milduð nokkuð á skjánum þar sem hann afgreiðir fórnarlömb sín í stuttum atriðum. Á pappírnum tekur hann sér fleiri klukkustundir í langdregin morðin. Bækurnar um Dexter eru ekki stórkostíegur skáldskapur og yfir- færslan í sjónvarp tekur eiginlega frumtextanum fram. Það breytir aft- ur á móti engu um að bækur Lynd- says eru hinn besti skemmtilestur. Þótt bygging bókanna sé einföld og alveg í anda dæmigerðra reyfara og spennumynda er ekki annað hægt en heillast af dagfarsprúða ófétinu og slást í för með honum. Maður er strax byrjaður að bíða eftir næstu bók rétt eins og maður bíður þess í ofvæni að fá að sjá meira af Dex í sjónvarpi. Þórarinn Þórarinsson BORNUM BJOÐANDI? Tónelsk mús Maxímús Músíkús heimsækir hljómsveitina er fjörug saga um litla mús sem villist inn í tónlistarhús þar sem sinfóníuhljómsveit er á æfingu. Hún lærir hvað hljóðfærin heita og hvers konar hljóð þau gefa ffá sér. Söguna skrifar Hallfríður Ólafsdóttir, flaumleikari við Sinfóníuhljómsveit Islands, og myndirnar teiknar starfs- bróðir hennar í hljómsveitinni, Þór- arinn Már Baldursson víóluleikari. Bókinni fylgir geisladiskur þar sem Valur Freyr Einarsson leikari les sög- una skreytta líflegum áhrifshljóðum og Sinfóníuhljómsveit Islands leikur tónverkin sem við sögu koma. Hvað er eiginlega barnaleikhús? Leikhús handa börnum, myndu vísast flestir svara í fljótu bragði. En mætti ekki einnig leggja annan skilning í orðið: leikhús sem gerir okkur öll að börnum, breytir okkur aftur í börn? Ef þið hafið séð hina ágætu bíómynd Finding Neverland um J.M. Barrie, höfund Péturs Pan, munið þið kannski eftir frumsýn- ingunni á leikritinu fræga í einu af fínustu einkaleikhúsum Lundúna. Innan um fullorðna fólkið var dreift hópi munaðarleysingja sem hlógu og skemmtu sér á barna vísu - og sjá: áður en varði voru gáfurnar og fínheitin og merkilegheitin runn- in af hinum fullorðnu og salurinn . orðinn fullur af börnum, hlæjandi og grátandi börnum! Falleg sena og full af meiningu; endilega sjá- ið myndina ef þið hafið ekki þegar gert það. Slík undur og teikn urðu nú því miður ekki á barna- leik Þjóðleikhússins og fyrirtækisins Skopps sf. sem var frumsýndur í Kúlunni í síðustu viku. Skoppa og Skrítía eru gamlir kunn- ingjar yngstu kyn- slóðarinnar úr sjón- varpinu, skilst mér, og ugglaust höfðu margir barnungarnir nokkurt gaman af endurfund- unum við þær. En því miður er handritið bara ekki neitt neitt, aðeins fáein sundurlaus at- riði úr heimsóknum S&S til fáeinna framandi landa, engin saga, engar persónur, svo orð sé á gerandi, aðallega eitthvert hopp og hí og tralala, fram og aftur, með söng- og dansnúmerum inn á milli - sem var reyndar það sem ég fyrir mitt leyti hafði mesta ánægju af. Og svo er „showið" allt í einu búið, fýrirvara- laust. Börn eru þakk- látir áhorfend- ur, en leikhúsið SKOPPA OG SKRÍTLA í SÖNG-LEIK eftir Hrefnu Hallgrímsdóttur ★★★★★ LEIKSTJÓRN: Þórhallur Sigurðsson fcfc I LEIKHUSD OMUR má aldrei ganga á það lag og slá af kröfunum. Allra síst forystuleik- hús þjóðarinnar. Börn geta reyndar líka verið mjög harðir gagnrýnend- ur sem kunnugt er. Ef þeim leið- ist geispa þau bara framan í leik- arana eins og ekkert sé og fara svo að spjalla við næsta mann. Þessi sýning er svo stutt að lítil hætta er á slíku, en ég er samt ekki viss um að allir hafi verið ýkja hrifnir þegar þeir stóðu upp og gengu út - þótt þeir hafi kunnað sig og beðið með að fella dóminn þangað til þeir voru komnir heim! Jón ViðarJónsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.