Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2008, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2008, Blaðsíða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 9. APRlL 2008 SUÐURNES DV „Það eru hátíðahöld hjá okkur á hverju einasta ári," segir Guðný Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Leikfélags Keflavíkur sem fagn- ar fjörutíu ára afmæli sínu í vetur. Það var stofnað árið 1967 og hleyp- ur fjöldi leikrita sem leikfélagið hef- ur sett upp á nokkrum tugum. Síð- ustu ár hefur það sett upp tvö verk á ári, sem þó hefur ekki alltaf verið raunin. „Það hafa komið tímabil þar sem mikil lægð hefur verið yfir leikhúslíf- inu í bænum. Bæjarbúar eru náttúr- lega misduglegir að mæta í leikhús. En sýningin okkar núna er alveg að slá í gegn," segir Guðný og vísar þar til revíunnar Bærinn breiðir úr sér eftir meðlimi gleðisveitarinnar Breiðbandið. „Þetta eru þrír aðeins of þéttir náungar sem gera grín að því hvað þeir eru kúgaðir af konun- um sínum," útskýrir Guðný og segir að þetta sé lýsingin sem þremenn- ingarnir viðhafi sjálfir um sig. „Þetta er frábær sýning, enda erum við að sýna fyrir fullu húsi hverja einustu helgi," segir Guðný en sýnt er í Frumleikhúsinu svo- kallaða við Vesturbraut sem tekur hundrað og þrjátíu gesti í sæti. Leik- húsið er einmitt tíu ára um þessar mundir og því tvöföld ástæða til að fagna þennan veturinn. En það eru náttúrlega alltaf hátíðahöld hjá leik- félaginu eins og Guðný benti á. Tæplega fjörutíu manns koma að sýningunni, allir i sjálfboðavinnu eins og venjan er, að frátöldum leikstjóranum, hinni þjóðþekktu leikkonu Helgu Brögu Jónsdóttur. „Fjöldi þeirra sem taka þátt í upp- færslunum er mismunandi eftir því hvað er verið að taka fýrir, en þetta er svona svipað og gengur og ger- ist," segir Guðný sem er aðstoðar- leikstjóri í sýningunni auk þess að leika hvorki fleiri né færri en fjögur hlutverk. Aðeins þrjár sýningar eru eftir, á fimmtudag, föstudag og laugardag, og því fer hver að verða síðastur að sjá gleðina. Allar nánari upplýsingar er að finna á lk.is. kristjanh@dv.is KARLOG KONA Arnar Ingi og Halla Karen í hlutverkum karls og konu. MENNINGARFULLTRÚINN Guðný Kristjánsdóttir í hlutverki Valgerðar Guömundsdóttur menningarfulltrúa. Í DÆTUR STEIN- ÞÓRS LJÓSÁLFS Brynja Ýr, Halla Karen og Maríanna í hlutverkum dætra Steinþórs Jónssonar Ijósálfs. RÚNIOGJÓI Rúnar Jóhannesson og Albert Halldórsson í hlutverkum Rúnna Júl og Jóa Helga. t; I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.