Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2008, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2008, Blaðsíða 32
32 MIÐVIKUDAGUR 9. APRlL 2008 Sport DV MEISTARADEILDIN Liverpool - Arsenal 4-2 1-0 Diaby (’13), 1-1 Hyypia C30), 2- ITorres C69), 2-2 Adebayor C84), 3-2 Gerrard ('85, vfti), 4-2 Babel C90+2). Liverpool fer áfram samanlagt 5-3 Chelsea - Fenerbache 2-0 1-0 Ballack C4), 2-0 Lampard C87). Chelsea fer díram samanlagt 3-2 ENSKI West Ham - Portsmouth 1 -0 NicoKranjcar('61) Staðan Lið L u J T M St 1. Man. Utd 33 24 5 4 70:17 77 2. Chelsea 33 22 8 3 58:23 74 3. Arsenal 33 20 11 2 63:27 71 4. Liverpool 33 17 12 4 57:25 63 5. Everton 32 17 6 9 49:27 60 6. Portsmth 33 16 8 9 47:33 56 7. Aston V 33 14 10 9 56:44 52 8. Blackbur 33 13 12 8 43:39 51 9. Man. City 33 13 10 10 37:39 49 lOIWestHa 33 12 8 13 35:40 44 II.Tottenha 33 10 10 13 62:56 40 12. Newcas 33 10 8 15 40:58 38 13. Sunder 33 10 6 17 32:50 36 14. Middles 33 8 11 14 30:47 35 15. Wigan 33 9 7 17 30:47 34 16. Reading 33 9 5 19 37:61 32 17. Birming 33 7 9 17 38:51 30 18. Bolton 33 6 8 19 30:52 26 19. Fulham 33 4 12 17 30:56 24 20. Derby 32 1 8 23 16:67 11 Ur>icefiff Chelsea á eftir Henry Slúðurmiðlamir eru fullir frétta af því að Chelsea ætli sérað ná (Thierry Henry, leikmann Barcelona. Henry hefur engan veginn staðið undir væntingum hjá Barca eftir að hann kom frá Arsenal. Hann átti að vera hluti af einhverjum ótrúlegasta kvartett sögunar með Lio Messi, Ronaldinho og Samuel Eto'o f framlfnu liðsins. En Henryhefur lítið getað einbeitt sérað fótboltanum því dóttir hans, Tea,býrenn í London með fyrrverandi konu Henrys. Hann er með samning við Barca til 2011 en vill að sögn komastafturtil London. Hicks horftti á hafnarbolta Tom Hicks horfði ekki á leik Liverpool og Arsenal í Meistaradeildinni f gær. Þess í stað fór hann til Bandaríkjanna til að kfkja á Texas Rangers, liðið sitt í NBL- deildinni.„Fyrsti dagurinn f hafnarbolta- deildinni ereins og þjóðhátíð f Bandarfkjunum. Ég hefaldrei misstaf fyrsta leik þar en ég verð með Liverpool-leikinn á skjá fyrirframan mig," sagði Hicks. Tvö á oftir Lennon Liverpool og Newcastle eru sögð hafa mikinn áhuga á Aaron Lennon, leikmanni Tottenham. Juande Ramos, stjóri Tottenham, ætlar að hreinsa eitthvað til á White Hart Lane en er ekki búinn að ákveða framtíð Lennons. Hann er sagður kosta rúman milljarð og er Newcastle tilbúiö að láta Charies N'Zogbia (staðinn. Hann vill endilega flytja til London enda Frakki. Björgólfur segir stopp Björgólfur Guðmundsson, eigandi West Ham, hefur sagt Alan Curbishley, stjóra liðsins, aö hann veröi að lækka launakostnað. Undir stjórn Eggerts Magnússonar fékk Curbishley óútfyllta ávfsun fyrir launum leikmanna. Þannig er Freddy Ljungberg hættur að sitja fyrir á myndum Calvins Klein. Var hann rekinn og keyptur út (kjölfarið. Craig Bellamy, Kieron Dyer, Luis Boa Morte, Lucas Neill og Matthew Upson eru allir á svimandi háum launum en hafa Iftið getað á vellinum. Björgólfur hefur orðið hart úti ( kreppunniog ekkijafnmikið til f hirslum hans og áður. Þvf þarf að spara. Liverpool er komið i undanúrslitin i Meistaradeild Evrópu eftir magnaðan sigur á Ars- enal, 4-2, á Anfield. Leikurinn var makalaus í alla staði, sóknarbolti af bestu gerð, en það var Liverpool sem fagnaði í leikslok og verður í undanúrslitunum í þriðja skipti á íjórum árum þar sem liðið mætir Chelsea. ■H Það má margt segja um gengi Liverpool í deildinni í vetur. Það gleymdist allt í gær þegar liðið bauð upp á enn eina sýninguna í Meist- aradeildinni. Rafa Benitez hefur verið gagnrýndur harðlega í vetur, talað um að hann sé að fara í lok leiktíðar og það séu vandræði með eigendurna. En hann sannaði enn á ný í gær að Meistaradeildin er hans keppni. „Hann er vor," sagði Tóm- as Ingi Tómasson, sérfræðingur um klæðaburð og knattspyrnu. Arsenal byrjaði með miklum látum og átti fyrstu 20 mínúturn- ar með húð og hári. Allt spil Liver- pool var stirt og fátt sem benti til þess sem koma skyldi. Það kom því ekki á óvart að Arsenal skyldi kom- ast yflr með marki Aboue Diaby. En Benitez lagaði leik sinna manna, fór ekkert á taugum og Liverpool kom til baka með hjálp vallarins sem lét í sér heyra sem aldrei fyrr. Heimamenn jöfnuðu með marki Sami Hyypia eftir hornspyrnu og þá varð fjandinn laus. 1-1 í hálfleik og síðari hálfleikur var gríðarleg stöðu- barátta en Liverpool samt með yfir- höndina. Ótrúlegur lokakafli Liverpool hefur mann sem heit- ir Fernando Torres og hann negldi boltann í samskeytin eftir að hafa hlegið að Felippe Senderos. Sneri hann af sér eins og að drekka vatn og hamraði boltann óverjandi fyrir Almunia í marki Arsenal. Torres var ekki búinn að sjást mikið í leiknum en hann dúkkaði allt í einu upp og bauð upp á 29. mark sitt á tímabil- inu. En gestirnir héldu áfram, vissu að eitt mark myndi koma þeim áfram. Theo Walcott var settur inn á til að fá meiri hraða og hraða bauð hann upp á þegar hann bjó til mark fyrir Emanuel Adebayor. Hljóp 85 metra á 6,78 sekúndum þrátt fyrir að fara fram hjá einum fjórum leikmönn- um Liverpool. Arsenal-menn fögn- uðu og í Meistaradeildinni kostar augnabliks einbeitingarleysi marga tugi milljóna. Ryan Babel var allt í einu kominn inn í teiginn, féll við og víti dæmt. Frábær innkoma Ryan Babel skoraðl síðasta mark Liverpool. Arsenal-menn stóðu agndofa eftir, fyrir sjö og hálfri sekúndu voru þeir að fagna en nú allt í einu var Liver- pool í kjörstöðu. Steven Gerrard tók spyrnuna og þrátt fyrir að vera Eng- lendingur á vítapunkti klikkaði ekki fyrirliðinn. Arsenal-menn trúðu vart sínum eigin augum, vissu ekki í hvorn fótinn þeir áttu að stíga, hvað þá hvernig þeir áttu að bregðast við. Þeir reyndu, settu alla leikmenn fram sem hugsast gátu enda skipti ekki máli hvort þeir töpuðu 3-2 eða 4-2 og Ryan Babel kórónaði frábæra innkomu sína með marki undir blá- lokin. Enn á ný Chelsea Liverpool á allt það hrós skil- ið sem í boði er. Liðið er ótrúlegt í Meistaradeildinni þó það sé ljóst að aðdáendur liðsins vilja frekar vinna Englandsmeistarabikarinn. Að lið- ið sé 14 stigum á eftir Manchester United skrifast á Rafa Benitez sem stjóra liðsins en í gær var hann ekki gagnrýndur, hann var hetja. Benitez var stoltur af sínu liði. „Liðið var frábært. Við vissum að það þyrfti eitthvað sérstakt á móti góðu liði. Þeir spiluðu vel og við vissum að við yrðum að passa okk- ur og gera réttu hlutina á réttu stöð- unum. Við gerðum það í seinni hálf- leik." Aðspurður hvernig honum litist á Chelsea svaraði Benitez af sinni einstöku hógværð. „Við mun- um fyrst njóta kvöldsins og svo för- um við að huga að leikjunum við þá.“ Chelsea er komið í undanúrslit eftir 2-0 sigur á Fenerbache: AUÐVELDARA AÐTALA EN GERA „Peningar kaupa leikmenn en ekki hjarta," sagði Deivid, miðju- maður Fenerbache, fyrir seinni leik- inn gegn Chelsea. Lundúnaliðið sigraði í leiknum, 2-0, í gærkvöld og komst í undanúrslit Meistaradeild- ar Evrópu. Deivid var kokhraustur eftir sigur Fenerbache á heimavelli en lið sem eiga peninga til að kaupa góða leikmenn klára einvígi eins og þessi. Ef enskt máltæki væri bein- þýtt á slakri íslenski þá talaði Fener- bache talið á meðan Chelsea labb- aði labbið. Hið rándýra Chelsea-lið beið ekki boðanna og hinn hundsúri Michael Ballack sem hefur haft allt á hornum sér undanfarnar vikur minnti enn á sig. Þjóðverjinn stæðilegi skallaði þá boltann í netið eftir sendingu Franks Lampard. Eins og Chelsea er von og vísa voru þeir ekkert að raða ur á Brúnni að bíða þangað til und- mörkunum inn og þurftu áhorfend- ir lok leiks þegar Lampard sá sjálfur Dýrkeyptur sigur Carlo Cudicini fór út af meiddur og Petr Cech ereinnig meiddur. um markaskorun og tryggði auð- veldan sigur sinna manna, 2-0. „Við verðskulduðum þetta," sagði Frank Lampard, annar markaskor- ari Chelsea, eftir leikinn. „í heild vorum við betri í báðum leikjunum þó að við hefðum tapað í Tyrklandi. Við spiluðum ekki jafnvel og við get- um í kvöld en meistaradeildin snýst bara um að ná góðum úrslitum sem við gerðum í þessar rimmu," sagði Lampard en Chelsea mætir Liver- pool í enn eitt skiptið í undanúrslit- um. „Það er ótrúlegt hversu oft við mætumst í þessari keppni. Við vit- um allt um þá og þeir vita allt um okkur. Það verða erfiðir leikir en það er mikilvægt fyrir okkur að halda sömu ró í þeim leikjum og við gerð- um í kvöld," segir Lampard. tomas@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.