Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2008, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2008, Blaðsíða 50
50 MIÐVIKUDAGUR 9. APRlL 2008 SUÐURNES DV Nýr hafnsögubátur íyrir Grindavíkurhöfn er nú í smíðum á Spáni. Reiknað er með að báturinn verði tilbúinn um miðjan júní og komi til landsins skömmu seinna. Báturinn kostar um 100 milljónir og hefur hækkað um fimmtán milljónir vegna gengisbreytinga síðustu vikna. Nýr ha&isögubátur fyrir Grindavíkur- höfn er nú í smíðum á Spáni. Reikn- að er með að báturinn verði tilbúinn um miðjan júní og komi til landsins skömmu seinna. Um nokkra bylt- ingu er að ræða fyrir Grindvíkinga, því gamli lóðsinn er kominn á sjö- tugsaldur og er mjög úr sér genginn, að sögn Sverris Vilbergssonar, hafn- arstjóra í Grindavík. Þegar samið var um smíðina hljóðaði kostnaðaráætlun upp á 75 til 80 milljónir króna. Vegna gengis- breytinga síðustu vikna má þó gera ráð fyrir að endanlegur kostnað- ur verði nær eitt hundrað milljón- um, jafnvel þótt nokkur hluti verðs- ins hafi þegar verið greiddur. Það er Grindavíkurhöfn sem kaupir nýja bátinn en Grindavíkurbær og ríídð fjármagna kaupin. Lamaðir án bátsins „Þetta verður náttúrlega bylting fyrir okkur að því leyti að án hafn- sögubáts erum við hálflamaðir," segir Sverrir hafnarstjóri. Undir venjuleg- um kringumstæðum þurfi ávallt að leiðbeina farskipum þegar þeim er snúið inni í höfninni. Leiðsögumenn þurfi reyndar líka að vera til taks fyrir „EN LEIÐSÖGUBÁ- TINN VILJUM VIÐ HAFA Á STAÐNUM (ÞEIRRIVONAÐ EITTHVAÐ SÉ EFTIR AFSJÁVAR- ÚTVEGINUM" stærri togara. „Sjálf innsiglingin hér er góð, en það eru þrengsli hér inni í höfninni sem menn þurfa að venj- ast og læra á," segir Sverrir. „Ef bát- urinn er ekki til staðar þá náttúrlega getum við ekki veitt neitt af þessari þjónustu." Ekki er reiknað með því að nokk- urt verð fáist fýrir gamla lóðsinn vegna aldurs og ástands. „Ég held að við teljum okkur heppna ef einhver finnst sem er tilbúinn til þess að losa okkur við hann. Kannski er einhver bjartsýnismaður sem getur hugsað sér að breyta honum í húsbát eða eitthvað slíkt," segir Sverrir. Óhöpp í nýrri innsiglingu Sverrir segir að jafnvel þótt miklar SHIPPING PARTNER MjL'H ' £ Vl V WW \ | •J •Á bætur hafi verið gerðar á innsigling- unni til Grindavíkur, þá sé ekki laust við að þar verði óhöpp. „Við höfum talið að þetta væri fremur þægiieg innsigling, núorðið að minnsta kosti. Því miður þá hefur mönnum stund- um reynst þetta erfiðara en við höfð- um talið. Menn hafa lent í vandræð- um af ástæðum sem við getum ekki alltaf sett okkur inn í." Hann segir að allt of mörg óhöpp verði í innsiglingunni. Sum þeirra jafnvel við bestu mögulegar aðstæð- ur. Við töldum í upphafi að þegar far- ið var í endurbætur á innsiglingunni þá yrði það lausn allra vandamála, en svo varð þó ekki. Sjávarútveginn áfram „En leiðsögubátinn viljum við hafa á staðnum í þeirri von að eitt- hvað sé eftir af sjávarútveginum," bætir Sverrir við. Grindavík sé senni- lega stærsta löndunarhöfn lands- ins þegar kemur að botnfiski. „Það er sennilega landað meira í Reykja- vík, en það stafar af því hve mikið af frosnum fiski kemur þar á land. Ann- ars erum við stærstir." Hann segir að nokkur svartsýni hafi ríkt í sjávarútveginum á Suður- nesjunum. „Við vorum óheppnir hér með það að þegar búið var að byggja upp heilmikla hafnaraðstöðu fýrir loðnuvinnslu, þá brann sjálf versks- miðjan. Síðan hafa menn reynt h'tið sem ekkert fyrir sér í loðnuvinnslu hér." sigtryggur&dv.is Þorsteinn Lár er einn af aðstandendum Kef City TV: aupp na í Keflavík „Við erum að gera þetta til að peppa upp þá gömlu og góðu stemmningu sem var í sláturhúsinu í gamla daga, þegar Suðurnesin áttu körfuboltann," segir Rottweilerhundur- inn, hótelstjórinn og íþróttaáhugamaðurinn Þorsteinn Lár Ragnarsson. Þorsteinn, ásamt Sigurði Gunnarssyni, félaga sínum, stendur nú í því að framleiða stutta þætti sem settir eru á síðuna youtube, þar sem fjallað er ít- arlega um körfuboltann í Keflavík. Fjallað er um einstaka leiki, leikmenn og annað sem við kemur körfuboltanum, en einnig er talað við andstæðinga í hverjum leik. „Við vildum líka gera þetta til þess að fá meiri umfjöll- un um körfuna á íslandi. Nú er körfuboltinn búinn að stinga handboltann af og íslensk- ir leikmenn orðnir mjög færir. En auðvitað erum við fyrst og fremst að gera þetta fyr- ir Keflavík," segir Þorsteinn sem kallaði Ár- bæinn heimili sitt, þar til hann fluttist suð- ur til að starfa á Hótel Keili. „Þar erum við að bóka grimmt inn fyrir sumarið. Verðum svo væntanlega með eitthvað húllumhæ fýr- ir úrlslitakeppnina. Það er alltaf eitthvað í gangi," segir Þorsteinn að lokum. Þættir Þor- steins og Sigurðar bera nafnið Kef City TV og er hægt að nálgast þá á slóðinni youtube. com/kefcitytv. Þorsteinn Lár Ragnarsson Segir að tími sé til kominn að peppa upp körfuna á íslandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.