Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2008, Blaðsíða 44
48 MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2008
SUÐURNES DV
< María Guðmunda Pálsdóttir og Eyrún Ösp Ingólfsdóttir eru nemar við Keili á Vallarheiði. Þær eru ánægðar með að vera í íyrsta ár-
gangi skólans og fá þannig að taka þátt í að móta skólastarfið.
VIÐ MÓTUM SKÓLANN
María Guðmunda Pálsdóttir og Eyrún
ösp Ingólfsdóttir eru nemar í frum-
greinanámi við Keili á Vallarheiði.
María er á hug- og félagsvísindalínu
og Eyrún er með áherslu á viðskipta-
fræði í sínu námi.
Eyrún lcaus að leigja út íbúð sem
hún á í Keflavík og leigja sér rúmgóða
íbúð inni á skólasvæðinu. „Á Valiar-
heiðinni leigi ég 170 fermetra íbúð á
tæpar 80 þúsund krónur á mánuði.
Eins og stendur kem ég út í plús, en ég
er að vinna í því að selja íbúðina mína
í Keflavík," segir Eyrún. Sonur hennar
fer svo í skólann á Vallarheiði næsta
vetur. Þetta segir hún að henti vel.
Hann sé vanur Hjallastefnu og kyn-
skiptum skóla, en þannig er grunn-
skólinn á Vallarheiði.
María býr í Sandgerði og kýs að
ferðast á milli kvöids og morgna.
Börnin hennar tvö eru á leikskóla í
Sandgerði. „Það passaði bara ágæt-
lega að vera áfram þar," segir hún.
Við erum tilraunadýr
María og Eyrún segja báðar að í
rauninni séu það forréttindi að fá að
vera með í skólanum frá fyrsta degi.
„Auðvitað erum við nokkurs konar
tilraunadýr, en í staðinn fáum við að
vera þátttakendur í þróun skólans og
námsins," segir María.
„Við erum að læra frumgreinarnar
sem við þurfum til þess að undirbúa
okkur fýrir háskólanám. Kennslan er
hröð ogálagið talsvert mikið. í rauninni
ætti það að gefa okkur ákveðið forskot
að vinna undir þessu álagi. Það er
meira í ætt við vinnubrögðin sem
tíðkast í háskólunum," segir Eyrún.
Námið sem þær fara í gegnum í
„ÁVALLAR-
HEIÐINNILEIGI
ÉG170 FERMETRA
ÍBÚÐÁTÆPAR80
ÞÚSUND KRÓNUR
Á MÁNUÐI."
Keili er eins árs langt og á sumum
brautum án þess að hlé sé gert að
sumri. Eyrún undirbýr sig undir að
sækja um í viðskiptafræðideild Há-
skólans í Reykjavík. María stefnir að
því að fara í Háskóla íslands.
Samheldni nemenda
Meðalaldur nemenda í Keili er
32 ár. Yngsti nemandinn er 23 ára
og elsti er á sjötugsaldri. „Þetta hafa
verið ótrúlega sterkir og góðir hópar
hérna í vetur, sem er að sjálfsögðu
kostur því að mikil áhersla er lögð á
hópvinnu," segir Eyrún. Þær segjast
báðar finna fyrir mikilli samheldni
meðal nemenda og almenn ánægja
sé meðal nemenda með skólann,
starfsfólkið og þann stuðning sem þar
er að finna. Eyrún hyggst halda áffarn
að leigja íbúðina á Vallarheiði eftir að
hún byrjar að sækja nám í Reykjavík.
„Þá kem ég bara til með að nota fríu
samgöngurnar meira en ég geri í dag,"
segir hún. sigtryggur&dv.is
Maria og Eyrún
María býr í Sandgerði og ekur í skólann á
morgnana. Eyrún kaus að leigja út íbúð f
Keflavík og flytja inn á Vallarheiðina.
Bílahornið
Bílahornið ehf.
S: 567-2400/659-2021 • www.bilahornid.is
Toyota Yaris
Árg. 6/2005. beinsk.
Ekinn 52þús.
Verð: 1.100þús
Chevrolet Aveo
Árg. 10/2006 Sjálfsk.
Ekinn 13þús.
Verð: 1.590þúsund
Volvo XC70 Toyota Land Cruiser 100
Árg. 10/2004 Sjálfsk. Árg. 2/2006 Sjálfsj. Bensín
Ekinn 107þús. Einn með öllu! Ekinn 49þús. Einn með öllu!
Verð:3.150þús Verð: 7.200þús
HondaCivic 1,81 ES
Árg. 3/2006 Sjálfsk.
Ekinn 25þús.
Verð: 1.990þús.
Toyota Avensis
Árg. 9/2005 beinsk.
Ekinn 57þús.
Verð:2.350þús
VW Golf
Árg. 7/2000 Sjálfsk.
Ekinn 102þús.
Verð:630þús
SsangYong Kyron
Árg. 8/2006 Sjálfsk.
Ekinn 30þús.
Verð:2.950þús
M.Benz E55 AMG
Árg. 1999 sjálfsk.
Ekinn 150þús. Einn með öllu
Verð:3.300þús
Hyundai Trajet 7manna
Árg. 5/2004 Sjálfsk.
Ekinn 78þús
Verð 1,600þús.
Porsche Cayenne S
Árg. 10/2004 Sjálfsk.
Ekinn 101 þús. Einn með öllu!
Verð:6.900þús
LMC Dominant 560RDB
Árg. 5/2006 sólarsella
Fortjald. Flott hjólhýsi!
Verð:2.850þús