Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2008, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 9. APRlL 2008
Fréttir DV
Forsætisráöherra kaus aö aka 679 metra leið í gegnum miöbæinn á leið sinni á fund um bætta imynd ís-
lands. Ef hann heföi valið að ganga í góða veðrinu hefði það tekið hann fjóra og hálfa mínútu. Gönguleiðin
að Hafnarhúsinu, þar sem Listasafn íslands er til húsa, er um 370 metrar.
GAKKTU GEIR
BALDUR GUÐMUNDSSON
bladamadur skrifar baldur«‘dv.is
Geir H. Haarde forsætisráðherra
var ekið frá Stjórnarráðshúsinu
við Lækjartorg, að Hafnarhúsinu
í Tryggvagötu í vikunni. Þar sótti
hann fund um ímynd íslands. Bein
lína á milli húsanna er 330 metr-
ar en styrsta gönguleiðin, fram hjá
Bæjarins bestu, telur 370 metra. Þar
sem gatnamótin á milli Kolaports-
ins og Bæjarins bestu eru lokiuð, er
styrsta mögulega akstursleiðin 679
metrar.
Krókaleið um miðbæinn
Hjá forsætisráðuneytinu fengust
þær upplýsingar að Geir hefði farið
með bflstjóra forsætisráðherra frá
Stjórnarráðinu að Hafnarhúsinu í
Tryggvagötu á mánudaginn. Rík-
isstjórnin hafi verið á fundi í ráðu-
neytinu og því hafi ráðherrann far-
ið þaðan á fundinn. Ef litið er á kort
af miðbænum og tekið er mið afyf-
irstandandi vegaframkvæmdum
við Kolaportið, sést að styrsta færa
leiðin er um Lækjargötu, Kirkju-
stræti, Aðalstræti og Naustina. Sú
vegalengd er 679 metrar en myndir
af vettvangi gefa sterklega til kynna
að bfll ráðherra hafi komið þá leið.
Hin færa leiðin liggur 800 metra um
Lækjargötu og Geirsgötu en bflnum
var þannig lagt að ólíklegt er að sú
leið hafi verið farin.
Ein með öllu
Ekki er auðvelt að reikna út
hversu langan tíma það hefur tek-
ið að aka þessa leið, sem sýnd er á
kortinu. Ekið er um þröngar göt-
ur og umferð þar stundum mikil,
auk þess sem hámarkshraði á þess-
um götum er ekki hár. Þetta hefur
væntanlega tekið nokkrar mínútur.
Það liggur hins vegar
fyrir að ef Geir hefði gengið á fimm
lalómetra hraða á klukkustund, frá
ráðuneytinu og stystu leið að Hafti-
arhúsinu, hefði það tekið hann um
fjórar og hálfa mínútu. Örlítið leng-
ur ef hann hefði gripið með sér eina
með öllu og kók af Bæjarins bestu.
Þar sem samgönguráðherra var
með í för hefði Geir getað nýtt fé-
lagsskapinn og valið aðrar, kannski
fallegri gönguleiðir. Hann hefði til
dæmis getað gengið um Austur-
stræti með viðkomu á Ingólfstorgi,
eins og sjá má á kortinu. Það hefði
lengt leiðina um 50 metra.
Upp á gangstétt
Á meðan Geir sat inni á fund-
inum skrifaði stöðumælavörður
sekt á ráðherrabflinn fyrir að leggja
ólöglega. Hann var hálfur upp á
gangstétt. Lögreglan upplýsti síð-
ar að sektin næmi 1500 krónum,
ef hún yrði greidd innan þriggja
daga. Ekki er vitað nákvæmlega úr
hvaða vasa sá peningur kemur en
yfirleítt er ábyrgðarmanni bflsins
gert að greiða hana. Hún rennur í
Bflastæðasjóð borgarinnar, að sögn
lögrelgu.
ímynd Geirs
Ekki er allt búið enn. Á meðan
Geir sat fundinn um ímynd Islands,
létu vörubflstjórar á sér kræla, sem
aldrei fyrr. Þeir fylktu liði og söfnuð-
ust saman fyrir utan Hafnarhúsið,
með þeim afleiðingum að ráðherra-
bfllinn lokaðist inni og komst ekki
burt þegar fundurinn kláraðist. Það
hefði ekki gerst ef Geir hefði
nýtt góða veðrið og gengið .
í rúmar fjórar mínútur, í
stað þess að þiggja far með
einkabflstjóra. Hann hefði
auk þess bætt ímynd sína
og mætt ferskari á fundinn,
án þess þó að því sé haldið
fram að hann hafi ekki verið
hinn hressasti. Hann hefði
líka sloppið við sektina.
Leggja hefði átt til leyfi til hjónabands samkynhneigðra segir Hjörtur Magni fríkirkjuprestur
Missa af einstöku tækifæri
Islensk stjórnvöld misstu af ein-
stöku tækifæri til að brjóta blað í
sögu mannréttinda á heimsvísu með
því að leyfa aðeins staðfesta sambúð
samkynhneigðra en ekki að samkyn-
hneigð pör fengju að ganga í hjóna-
band eins og gagnkynhneigð pör.
Þetta segir séra Hjörtur Magni Jó-
hannsson, prestur Fríkirkjunnar í
Reykjavík.
Séra Hjörtur Magni fagnar ný-
framkomnu frumvarpi forsætisráð-
herra um að prestar fái að blessa stað-
festa samvist samkynhneigðra para.
Honum finnst hins vegar of skammt
gengið. „Um leið og ég fagna því að
merkum áfanga skuli vera náð tel ég
dapurt að skrefið skuli ekki stigið til
fulls og samkynhneigðum leyft að
ganga í hjónaband rétt eins og gagn-
kynhneigðum." Hann telur að best
Brúðhjón Samkynhneigðir fá ekki að
ganga í hjónaband en fá staðfesta
samvist blessaða hjá þeim prestum sem
það vilja.
hefði verið að fella niður lagabálkinn
um staðfesta samvist og gera ein lög
sem gætu orðið fyrirmynd fyrir lög-
gjöf annarra ríkja.
„Við hefðum getað orðið frum-
kvöðlar í mannréttindamálum en
missum af því tækifæri með þessu.
Það getur verið skaðlegt að stíga
skrefið bara til hálfs," segir séra
Hjörtur Magni. Hann telur að helsta
ástæðan fyrir því að ekki sé gengið
lengra sé fyrirstaða þjóðkirkjunnar.
„Biskups sérstaklega held ég." Kirkj-
unnar menn samþykktu á þingi sínu
að þeir gætu sætt sig við að prest-
ar gætu, en væru ekki skuldbundnir
til að blessa staðfesta samvist. Hall-
dór Ásgrímsson, fyrrverandi forsæt-
isráðherra, sagði á sínum tíma að
hann vildi taka tillit til Þjóðkirkjunn-
ar og það virðist Geir H. Haarde, nú-
verandi forsætisráðherra, gera.
Hjörtur Magni jafnar því tæki-
færi sem íslendingar höfðu til að
láta til sín taka núna við forgöngu
þeirra sem unnu að afnámi þræla-
halds og upptöku kosningarétt-
ar kvenna á sínum tíma. „Með ná-
kvæmlega sama hætti gætum við
núna sem þjóð verðið í framvarðar-
sveit og frumkvöðlar að því að móta
merkilega lagasemingu á þessu
sviði. Réttindi samkynhneigðra á við
gagnkynhneigða eru ekkert ósvipuð
þessu í kirkjusögulegu samhengi við
það þegar þrælahald var afnumið og
konur fengu kosningarétt.
Séra Hjörtur Magni seg-
ir að hann hafi þeg-
ar fengið nokkr-
ar bókanir hjá
þeim sem vilja
fá staðfesta
samvist sína
blessaða í Frí-
kirkjunni.
Gátum verið fyrirmynd annarra
Hjörtur Magni segir að (slendingar hefðu
getað haft frumkvaeði á heimsvísu með því
að leyfa hjónabönd samkynhneigðra.