Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2008, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 9. APRfL 2008
Neytendur DV
5NEYTENDUR
neytendur@dv.is Umsjón: Ásdís Björg Jóhannesdóttir
\ Kjarnafæði með óbreytt verð
Kjamafæði hefur ákveðið að hækka ekki verð hjá sér þrátt fyrir miklar
hækkanirá hráefni, umbúðum,flutningsgjöldum og eldsneyti á undanförn-
um vikum. Neytendasamtökunum barst bréf frá þeim þar sem þeir lýstu yfir
að vilja fylgja tilmælum viðskiptaráðherra, forystumanna ASl og Neytenda-
samtakanna um að sporna við óhóflegri verðbólgu. Kjarnafæði, líkt og Ikea,
vill með þessu leggja lið í baráttunni gegn versnandi kjörum. Neytenda-
samtökin hvetja enn fleiri fyrirtæki til að gera slíkt hið sama.
NAOMI
: CAMPBELl
j C-at th'fu
Ef maður minnkar keyrsluna um 20 kílómetra á dag er hægt að spara allt að 200 þús-
und krónum á ári. Það jafngildir einni ferð, fram og til baka, frá Reykjavík til Hafnar-
Qarðar. Að sameinast í bíla er eitt af góðum sparnaðarráðum sem Runólfur Ólafs-
son, framkvæmdastjóri FÍB, gefur.
MINNKADU
KEYRSLUNA
•w
'ÉÍI.Í
VERÐKOIVIVUIM
Apótekin
óaýrust
Hægt er að fá ilmvötn á
ýmsum stöðum. í fríhöfninni,
í snyrtivöruverslunum og apó-
tekum. í verðkönnun á þessum
stöðum kemur í ljós að frihöfn-
in er ódýrust. Þar á eftir koma
apótekin. Á dýrasta og ódýrasta
ilmvatninu er rúmur 20 pró-
senta munur.
VERÐ Á ILMVÖTNUM
Fríhöfnin 2.889
Rima Apótek 3.409
Lyfja Smáralind 3.599
Hagkaup 3.639
Snyrtivöruverslunin Glæsibæ 3.700
Snyrtivöruverslunin Andorra 3.700
146,20 IIIfNStlV 155,10 BÍSKL
W Blktshöfða 145,90 iir.ivstN 155,00 UtSKI.
I Gylfaflöt 147,10 IIIIIVNtlV 156,00 DtSKL
I ^u*>raul 145,80 IIF.lVStlV 154,90 DtSKI.
0J BarOastöóum 144,10 IIKNStN 153,10 UtSEI.
1 5máralind 145,90 IIKNStN 155,00 DÍSKI,
HSJ Gognve91 147,70 IIKNStN 156.60 UtSEL
Hægt er að spara tugi þúsunda
króna með því einu að minnka
keyrsluna. Bensínlítrinn er afar dýr
um þessar mundir og því ekki erf-
itt að fmna mun. Ef maður ekur 20
kílómetrum minna á dag í heilan
mánuð getur maður sparað allt að
8 þúsund krónum miðað við lítinn
fólksbíl. Sparnaðurinn getur numið
allt að 17 þúsund krónum eigi mað-
ur jeppa. Þessi vegalengd, 20 kíló-
metrar, jafngildir því að keyra frá
Reykjavík tii Hafnarfjarðar og til
baíca.
Mikill munur
„Skipuleggja ferðirnar,"segir
Runólfur Ólafsson, framkvæmda-
stjóri FlB. „Einföld leið til að eiga
meiri pening í buddunni."
Með því að skipuleggja ferð-
irnar sínar hvern dag getur mað-
ur sparað sér tíu kílómetra akst-
ur á dag. Á litlum sparneytnum
bíl sem eyðir 9 lítrum á hundrað-
ið sparar maður tæpar 4 þúsund
krónur á mánuði. Á ári eru það
tæpir 50 þúsund krónur. Á stór-
um jeppa sem eyðir 19 lítrum á
hundraðið gerir það rúmar 100
þúsund krónur á ári.
Ef maður keyrir 20 kílómetr-
um minna á dag gerir það tæpar 8
þúsund krónur á mánuði og rúm-
ar 95 þúsund á ári fyrir litla bílinn.
Fyrir stóra jeppann gerir það um
17 þúsund krónur á mánuði og
um 200 þúsund ári.
Deila bíl í bæinn
„Vinnufélagar geta komið sér
saman um ferðir í vinnuna séu þeir
að fara á sömu slóðir," bendir Run-
ólfur á sem eina af sparnaðarleiðum.
Tekið er dæmi um mann sem býr í
Reykjanesbæ og vinnur í Reykjavík.
Hann á jeppling sem eyðir 15 lítr-
um á hundraðið í blönduðum akstri.
Hann þarf að keyra 50 kílómetra á
dag til að komast til og ffá vinnu.
Það gerir 2000 kílómetra á mánuði.
Miðað við að bensínlítrinn kost-
ar 147, 60 krónur eyðir hann 44.280
þúsund krónum á mánuði í ferðirn-
ar. Ef maðurinn myndi deila bíl með
öðrum í bæinn til að fara í vinnuna
myndi hann spara þessa upphæð á
mánuði. Ef hann myndi deÚa kostn-
aðinum væri hann samt sem áður að
spara 22.140 krónur á mánuði sem
gerir 265.680 krónur á ári.
Mikili ávinningur
Einfaldasta og besta leiðin til
að minnka eyðsluna er að passa
að hafa réttan loftþrýsting í dekkj-
um og engan aukaþunga í bílnum.
„Það fylgir því mikill ávinningur að
reyna að draga úr eldsneytisnotkun
eins og hægt er. Eins og með því að
yfirvinna loftmótstöðu og núnings-
mótstöðu í dekkjum," segir Run-
ólfur. Hann vill meina að sá sem er
meðvitaður um þessa hluti sé meira
vakandi fyrir umhverfinu. „Gott er
að fylgjast með flæði umferðarinn-
ar, hvernig ljósastaðan er við næstu
gatnamót, hvenær á að beygja næst
og hvaða leið sé best að fara. Þetta
leiðir svo til meira öryggis í umferð-
inni,“ bætir hann við.
Fylgjast með Ekki keyra á háum
snúningi. Það eyðir meira bensíni
I langakstri
'f',
5 O
6
„Með einföldum
aðgerðum er hægt
að draga úr bensín-
kostnaði"
r
IC - 3 D
o-uc
a/4 —
Í°\
HVAÐ SPARAST EF AKSTUR ER MINNKAÐUR:
Ef akstur er minnkaftur um
10 kílómetra á dag
20 kílómetra á dag
50 kílómetra á dag
Litillbíil
áári
47.820
95.640
318.816
Miðlungsbíl!
áárí
79.704
159.408
531.360
Stór bíll
áári
100.956
201.912
673.056
Leið til að losna úr vitahring klukkubúða:
SKIPULEGGÐUINNKAUPIN
■ Lofið fær
GuðlaugurÞór
Þórðarson
heilbrigðisráðherra
i fyrir að fella niður
komugjöld barna á
heilsugæslustöðvar
og á sjúkrahús. Frá
áramótum
greiða börn og
ungmenni und-
ir átján ára í framtlðinni ekkert fyrir
komu á heilsugæslustöð og á
sjúkrahús. Lofsvert framtak hjá
Guðlaugi,
IQF&LAST
Lofið fær
Guðlaugur Þor
Þórðarson heilbrigð-
isiáðherra fyrir að í
fella niður komugjöld
barna á heilsugæslustöðv- Ug.
ar og á sjúkrahús. Frá
áramót-
um greiða börn
og ungmenni undir
átján ára í
framtíðinni ekkert fyrir komu á
heilsugæslustöð og á sjúkrahús.
Lofsvert framtak hjá Guðlaugi.
Klukkan er sex og ekki búið að
ákveða hvað á að vera í matinn. f ís-
skápnum er ekki nóg til að setja sam-
an í staðgóða máltíð. Það er endað á
því að kaupa pitsu eða keyptur tilbú-
inn kjúklingur ásamt meðlæti í Nóa-
túni eða 10-11. Matur sem kostar sitt.
Á meðan vöruverð er svo hátt og
launin standa í stað er afar óhagstætt
að vera með slíka matseðla kvöld eft-
ir kvöld. Fyrir þá sem þykir þetta ekki
ákjósanlegur kostur er skipulagning
og innkaupaferðir í lágvöruverðsversl-
anir málið. f nýlegri verðkönnun milli
verslana á höfuðborgarsvæðinu kom
fram að tæpur 57 prósenta munur var
á milli Bónus og 10-11. Mánaðarinn-
kaup í 10-11 upp á 40 þúsund krónur
myndu kosta rúm 22 þúsund í Bón-
us samkvæmt útreikningum. Tæpur
helmingsmunur.
Gott ráð er að gera matseðil fyrir
eina viku í senn. Taka út pening sem
eyða á í mat á mánuði. Skipta hon-
um síðan niður í 4 hluta. Hver hluti er
svo ætlaður innkaupum þá vikuna. Til
að byrja með er gott að ákveða bara
kvöldmat á hverjum degi. Skipuleggja
síðan restina af deginum þegar þetta
er komið upp í vana. Ef maður er með
barn á leikskóla er gott að skipuleggja
út ff á því.
Þetta virðist vera mikil aukavinna
en þegar maður er kominn upp á lag-
ið með þetta á það eftir að spara mikil
útgjöld.