Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2008, Síða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 9. APRlL 2008
SUÐURNES DV
Jarðvegsvinna við Álver Norðuráls í Helguvík er
hafin. Kostnaðurinn við fyrsta áfanga verður sjötíu
milljarðar. Verið mun framleiða 150 þúsund tonn á
ári og nota 250 megavött af raforku. Þórunn Svein-
bjarnardóttir umhverfisráðherra er óhress með
framkvæmdina og segir menn ekki vita hvar stinga
eigi í samband. Árni Sigfásson segir Orkuveitu
Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja þegar hafa
sýnt fram á að nóg sé af rafmagni.
Framkvæmdir eru hafnar við bygg-
ingu álvers í Helguvík. Umhverfls-
ráðherra, Þórunn Sveinbjarnardótt-
ir, hefur ítrekað lýst yfir óánægju
með þá ákvörðun sveitarstjórnanna
í Reykjanesbæ og Garði að veita leyfi
fyrir álverinu. „Helguvík er dæmi um
framkvæmd sem byrjar á öfugum
enda, menn eru byrjaðir að reisa ál-
ver án þess að vita hvar þeir ætla að
stinga í samband," sagði umhverfis-
ráðherrann í Silfri Egils síðastliðinn
sunnudag.
Framkvæmdin hafði staðist um-
hverfismat hjá Skipulagsstofnun.
Náttúruverndarsamtökin Landvernd
kærðu umhverfismatið til umhverf-
isráðherra, sem vísaði kærunni frá
og staðfesti þar með umhverfismatið
3. apríl síðastliðinn. Þórunn Svein-
bjarnardóttir sagði við það tækifæri
að hún hefði orðið að fara að lögum
og staðfesta umhverfismatið, jafnvel
þótt henni væri það ekki að skapi.
Fórum að lögum
„Norðurál stóð sjálft fyrir könnun
á hentugum stöðum íyrir álver. Þeir
leituðu að lokum til okkarvegnaþess
að staðsetningin í Helguvík þótti
henta vel. f öllu þessu ferli hefur ver-
ið farið að lögum í einu og öllu," segir
Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykja-
nesbæ.
Hann bætir við að bygging álvers
Norðuráls í Helguvík hafi nú þegar
verið fjögur ár í undirbúningi. Eftir
að upphafleg staðsetning hafi verið
valin, með tilliti til reglugerða, hafi
komið fram ábendingar frá íbúum
um að kerskálarnir yrðu staðsett-
ir fúllnálægt byggð í Keflavík. „Upp-
„RÁÐHERRAR HAFA FARIÐ UTAN OG RÆTT
VK> aðstoðarAlforstjóra. MENN HAFA
VILJAÐ MERKJA SÉR ÞESSAR FRAM-
KVÆMDIR OG ÞANNIG MERKJA SÉR HEILU
LANDSHLUTANA.'
FRAMKVÆMDIR HAFNAR Stórvirkar
vinnuvélar hafa þegar hafið störf við
jarðvegsvinnu i Helguvík. Sjálft álverið
verður í landi Garðs.
-
- •: '.V‘>'— .*.ý • ■• ■ ,- -■...
RÓLEGA AF STAÐ Framkvæmdirí
Helguvlk fara rólega af stað en umfang
þeirra stóreykst um næstu áramót. mm
Kostnaðurverðurá bilinu 60 til 70 milljarðar. j
ziæF-ma '
hafleg staðsetning stóðst allar kröf-
ur en við urðum við þessum óskum
og færðum álverið, sjálfa kerskálana,
inn í land Garðs," segir Árni.
Hann segir að öll umræða um
stóriðju og orkuvinnslu verði að eiga
sér stað, en blæs um leið á þær full-
yrðingar að ekki liggi fyrir hvaðan
orkan í álverið eigi að koma.
Sjötíu milljarða kostnaður
„Hitaveita Suðurnesja og Orku-
veita Reykjavíkur hafa þegar sýnt
fram á að til er nægileg orka fýrir
fyrsta áfanga álversins," heldur Árni
áfram. Reiknað er með að framleiðsl-
an verði 150 þúsund tonn á ári. Til
þess þarf 250 megavött af rafmagni.
Álverið verður tekið í notkun seinni
hluta árs 2010.
Forsvarsmenn Norðuráls lýstu
því yfir í lok síðustu viku að kostn-
aður við þennan fýrsta áfanga ál-
vers í Helguvík verði á bilinu sextíu
til sjötíu milljarðar króna. Rúmur
helmingur þessa kostnaðar kemur
til vegna kaupa á framleiðslubúnaði
og tækjum til álffamleiðslu. Fimmt-
án prósent upphæðarinnar fara í
vinnulaun við framkvæmdir og önn-
ur fimmtán prósent renna til kaupa
á byggingarefnum og öðrum búnaði.
Annar kostnaður á borð við trygg-
ingar og flutninga er talinn nema sex
milljörðum króna.
Stjórnmálamenn merkja sveitir
„Fram að þessu hafa ákvarðanir
um álver á íslandi farið þannig fram
að stjórnmálamenn og ráðherrar
hafa farið utan og rætt við aðstoðar-
álforstjóra. Menn hafa viljað merkja
sér þessar framkvæmdir og þannig
merkja sér heilu landshlutana. Síðan
hefúr jafnan verið fagnað ógurlega,"
segir Árni. „í þessu tilviki er þetta
allt saman á einföldum viðskiptafor-
sendum," segir Ámi.
„Þeir sem barist hafa gegn þessu
álveri vilja meina að ekki eigi að fara
af stað í framkvæmdina nema hægt
sé að hafa álverið miklu stærra og
orkan í það hafi verið tryggð. Hvaða
hagsmuni hafa umhverfisverndars-
innar af því að þetta álver verði enn-
þá stærra en þegar er gert ráð fyrir?
Norðurál sættir sig við þennan fýrsta
áfanga, og hann hentar bæði svæð-
inu og íslensku efnahagslífi."
sigtryggur@idv.is
NÚGETURÞÚ LESIÐ
DVÁDV.IS DVer
aðgengilegt
á dv.is og
kostar
netáskriftin
1.490 kr.á
mánuði
DYTTAÐ AÐ BATNUM
FeðgarnirJón Ragnar Sigurgeirsson og Sigurgeir
Sveinsson notuðu tlmann og dyttuðu að bátnum
Stakki við smábátahöfnina í Keflavík neðan Duus-
húsa á laugardagsmorguninn. Þeir létu norðan-
þræsinginn ekki hafa áhrif á sig og Jón Ragnar
hafði meira að segja náð sér I tvo smáa marhnúta
sem hann geymdi í glærum plastpoka, fullum af
sjó.„Báturinn er fyrst og fremst tómstundagaman
hjá okkur," segir Sigurgeir.