Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2008, Page 28
28 MIÐVIKUDAGUR 9. APRlL 2008
SUÐURNES DV
* *
V
r
% %
Orkurík fæða
Fræðslunámskeið fer fram í
Lífsblóminu heilsudeild
Samkaup Njaróvík
Marla Eirlksdóttír
fimmtudagskvöldió 10. apríl
kl. 20:00
_ .
Pul/mrt
námskeið
MiesTðo s'mekmtunar
k SUO JRKESJUM
BE3SEVS9
Skráning I ilma 840 5366 WWW.pulsÍnn. ÍS
Neyðarþjónusta
Suðurnesja
Tökum að okkur allar opnanír
Einnig erum við með
geymsluhúsnæði í garðinum
tfyrir tjaldvagna og fellihýsi
Óli páls
S. If$ I 166
Hjartastopp
- PAD hjartastartari
Fljótvirkara og einfaldara verður það varla
Nú þegar eru fjöldi (slendinga í fullu fjöri sem startað
hefur verið í gang með hjartastörturum
frá Donnu. Vertu viðbúinn og fáðu
þér strax Samaritan PAD
hjartastartara.
I
Donna
A
Sími 555 3100
Sýnikennsla á www.donna.is
-hvað er að frétta?
Nóg af orku Árni bendir á að með betri
tækni sé nú hægt að virkja á fjölmörgum
stöðum án þess að umhverfisáhrif séu (
líkingu við þaö sem áður var.
. ,
„ÞÁ GETUR MAÐUR ALVEG EINS SPURT
SIG HVORT EKKISÉ RÉTTAST AÐ SKERA
REYKJANESIÐ AF LANDINU, RÉTT EINS
OGTALAÐ HEFURVERIÐ UMÍSAMBANDI
VIÐ VESTFIRÐINA."
ir við hættumerkin einnig." Nú þeg-
ar skórinn kreppi hjá bönkum og
fjármálafyrirtækjum sé það hinum
smærri fýritækjum sem fyrst blæði
út. „Þetta eru fyrirtækin sem tóku
við fólkinu sem missti vinnuna þegar
herinn fór."
í þessu ljósi virðist það skýrt af
hálfu Árna að bæjarfélagið verði að
hafa hraðar hendur í uppbyggingu at-
vinnutækifæra. „Hér er ég ekki síst að
tala um álversframkvæmdir í Helgu-
vík."
Undirliggjandi hætta
En á sama tíma og tennurnar eru
dregnar úr sjávarútveginum og her-
inn hverfur á brott með sínar gæft-
ir fyrir verktakafyrirtæki og þjónustu
hefur íbúum í Reykjanesbæ og á öll-
um Suðumesjum fjölgað. Við bæjar-
mörkin er skilti þar sem stendur „Hér
búa 13.500 manns og fjölgar ört". „f
rauninni eru þetta 13.700 manns. Við
höfum bara ekld haft við að endur-
nýja áletrunina á skiltinu."
Þessa fjölgun segir Árni að megi
meðal annars rekja til uppbygging-
ar skólastarfs á VaÚarheiðinni, gamla
varnarsvæði Bandaríkjahers. „En jafn-
vel þótt vel hafi gengið að umbreyta
varnarsvæðinu og ágætlega hafi teldst
til við að útvega fólki vinnu er undir-
liggjandi ákveðin hætta í atvinnumál-
um á Suðumesjum. Þessi hætta er
raunveruleg, en við emm náttúrulega
varin með okkar aðgerðum í atvinnu-
málum." Hér á hann bæði við bygg-
ingu álvers í Helguvík og ekki síður
gagnaver Verne Holding inni á Vallar-
heiði. „Þessi verkefni em til þess fallin
að laða aðra starfsemi hingað."
Gagnaver á Vallarheiði
Gagnaver Veme Holding verð-
ur til húsa í tveimur stómm vöm-
húsum á Vallarheiðinni. Félagið er
að megninu til í eigu Björgólfsfeðga í
gegnum Novator en einnig að hluta
í eigu bandaríska félagsins General
Catalyst. Veme Holding hefur einnig
tryggt sér aðgang að landi til ffekari
uppbyggingar í framtíðinni.
Áætlað er að starfsemi gagnavers-
ins hefjist strax upp úr næstu ára-
mótum. „Til þess að þetta megi verða
að veruleika þarf þetta fyrirtæki bæði
að hafa traustan aðgang að ljósleið-
aratengingum, sem sé bæði Far-
ice og Danice. Þeir þurfa vitanlega
líka orku og hafa gert samning við
Landsvirkjun um að tryggja afhend-
ingu á 25 megavöttum af orku, með
möguleika á öðmm 25 megavöttum
til viðbótar þegar fram í sækir. Fram-
tíðarsýn þeirra er orkuþörf upp á 150
megavött, þegar til lengri tíma er lit-
ið,“ segir Árni.
Skilyrði fyrir starfsemi gagnavers,
eða netþjónabús eins og starfsemin
hefur einnig verið kölluð, er algjört
afhendingaröryggi á raforku. „Það
liggur fyrir að við getum útvegað raf-
orkuna, en það þarf að gerast með
tengingu við landsnetið." Það sé frá-
leitt tal að hægt sé að tefja raforku-
flutning af landsnetinu inn á Reykja-
nesið. „Þá getur maður alveg eins
spurt sig hvort ekki sé réttast að skera
Reykjanesið af landinu, rétt eins og
talað hefur verið um í sambandi við
Vestfirðina. Þetta er óhugsandi, við
búum ekki í slíku landi."
Aukin menntun
Einn þáttur í atvinnuleysi á Reykja-
nesi, að mati Árna, er lágt menntunar-
stig á svæðinu. Með stofhun skólans
Keilis á Vallarheiði hafi verið stigið
stórt skref í rétta átt. „I andránni er
þarna svokallað frumgreinanám, sem
er undirbúningur undir háskólanám.
Það er hins vegar á teikniborðinu að
þarna verði háskólanám með gæða-
vottun ffá Háskóla íslands."
Bæði þurfi að mennta starfsfólk í
álveri og ekki síður þá sem koma til
með að starfa í gagnaveri. „í raun er
skortur á landinu á fólki með rétta
menntun til þess að starfa við gagna-
ver. Þarna mun myndast eftirspurn
eftir námi og við gerum ráð fyrir að
þessari eftirspurn verði sinnt í Keili."
I gagnaverum er þörf á starfsfólki
með menntun á sviði rafmagns-, raf-
einda- og tölvutækni. „Þetta á eftir að
gefa okkur færi á að mennta fólk sér-
staklega í þessi störf. Unga fólkið sér
vonandi ný tækifæri á þessu sviði."
Árni segir einfalda útreikninga
benda til þess að með tilkomu álvers
í Helguvík muni meðaltekjur á svæð-
inu hækka talsvert. „Þessi starfsemi
mun gjörbylta launaumhverfinu hjá
okkur. Gagnaverið mun líka hafa
áhrif, en þar eru þó færri störf á ferð-
inni. Innan dyra í álverinu fáum við
þrjú hundruð störf."
Jóhann áfram í löggunni
Fjárskortur og slæm afkoma lög-
regluembættisins á Suðurnesjum frá
því að sameining embætta fór fram
fyrir rúmu ári hefur valdið því að Jó-
hann R. Benediktsson lögreglustjóri
hefur rætt um að láta af störfum.
Árni telur að ekki þurfi að óttast um
löggæslu á svæðinu. „Það er grund-
vallaratriði í þessari uppskiptingu
sem nú hefur verið ákveðin að það
er verið að skilja tollgæsluna frá lög-
reglunni. Við munum eftir sem áður
halda þeim ótvíræðu kostum sem
sameinuð lögregluembætti á Suður-
nesjum fela í sér."
Mikilvægast telur Árni að fundin
verði lausn þannig að á Keflavíkur-
flugvelli verði aðeins ein yfirstjórn
lögreglu og tollgæslu. „Það er hægt
að gera það þó að kerfin séu aðskil-
in. Það er hægt en það þarf þá vilja
til-og lausnir sem virka." Menn séu
ekki að hverfa aftur á bak í tíma með
þessari uppskiptingu. Lögreglu-
embættiá Suðurnesjum verði áfram
eitt.
„Ég óska þess hins vegar heitast
að Jóhann starfi með okkur áfram.
Hann er mjög fær og góður í sam-
starfi og það yrði mikill missir að
honum." sigtryggur@dv.is