Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2008, Qupperneq 33
PV Sport
MIÐVIKUDAGUR 9. APRlL 2008 33
í gær voru 40 ár frá því aö íslenskt lið lagði Dani í fyrsta skiptið í hópíþrótt. Það var
landslið íslands í handbolta sem gerði það 8. apríl 1968 með fornfrægum 15-10 sigri í
Laugardalshöll. Af því tilefni heiðraði HSÍ þá merku menn sem tóku þátt í þessum leik
við athöfn á Hótel Loftleiðum í gær. Einn skotfastasti maður í manna minnum, Víking-
urinn Jón Hjaltalín Magnússon, var einn af nýliðunum sem voru kallaðir í leikinn.
bladamaður skrifar: tomasi^dv.is
10-15 Hetjurnar
stilla sér upp eftir
sigurinnfrækna 1968.
maður meina að breiddin í íslensk-
um handknattleik væri næg til að
gefa fleiri leikmönnum tækifæri. Þeir
fimm nýliðar sem fengu tækifær-
ið voru þá hinn kornungi Björgvin
Björgvinsson úr Fram, Gísli Blöndal
úr Val, Emil Karlsson úr KR, Sigur-
bergur Sigursteinsson úr Val og Jón
Hjaltalín Magnússon úr Víkingi.
Æfði sig í hvalnum
„Ég var nýkominn úr kirkju fyr-
ir landsleikinn þar sem var verið
að ferma Dísu systir mína. Hvort ég
hafi verið að drífa mig svo rosalega í
veisluna sem var eftir leikinn veit ég
ekki en allavega skaut ég á markið
eftir tvær sekúndur og boltinn stein-
lá í markinu. Markvörðurinn greyið
vissi ekki einu sinni að boltinn væri
kominn í markið," sagði Jón Hjalta-
lín Magnússon við DV á hátíðinni
en þakið ætlaði hreinlega af Laugar-
dalshöllinni þegar skot Jóns rataði í
netið.
„Þetta var mikill kjarkur hjá lands-
liðsnefndinni," segir Jón um ákvörð-
un landsliðsnefndar að taka ungu
mennina inn í liðið. „Þeir sýndu
þarna mikið hugrekki og ákvörðun
þeirra sýnir að oft er hægt að treysta
ungu fólki fyrir erfiðum verkefnum.
Vegna þessa þjöppuðum við okkur
vel saman og voru staðráðnir í því
að gera okkar allra besta. Danir voru
með eitt af bestu liðunum á þessum
tíma en þetta gekk hjá okkur þarna."
Jón lifir í manna minnum sem
einn skotfastasti leikmaður allra
„Landsliðsnefndin sýndi hugrekki,"
skrifar Alífeð Þorsteinsson, fyrrver-
andi stjórnarformaður Orkuveitunn-
ar, þá 24 ára blaðamaður á Tímanum
árið 1968. I grein sinni hrósar hann
þar landsliðsnefnd karla það árið
sem þorðu eftir 17-14 tapleik gegn
Dönum í handbolta að kalla á yngri
og ferskari leikmenn í seinni leik-
inn. Svo fór að nefndin gerði það og
ungu leikmennirnir fóru á kostum í
15-10 sigri í seinni leiknum sem var
um leið fyrsti sigur íslensks landsliðs
á Dönum í hópfþrótt.
Landsliðsnefndin valdi liðið
Það þætti saga til næsta bæjar í
dag ef þjálfari landsliðsins sæi ekki
um að velja liðið en sú var raun-
in. Herramennirnir Hannes Þ. Sig-
urðsson, Hjörleifur Þórðarson og Jón
Kristjánsson, sem skipuðu landsliðs-
nefndina þá, völdu í liðið og Birgir
Björnsson, þjálfari FH, þjálfaði lið-
ið. Alfreð hafði skrifað grein í Tím-
ann fyrir leikina tvo með yfirskrift-
inni: „Við höfum efni á að skipta um
landslið."
Með því vildi þessi ungi blaða-
ISL;
lÉglÉ ’
4 hkhU‘1‘1 um öyc
—----
■ TíiímV V
fct.í I : i.i 11\1 ■; - : !•* ,;
:MÍpÉ
" 'M
p
I SKOTFASTURMEÐ
I EINOÆMUM Jón Hjaltalín
I Magnússon fékk kraftinn í
I hvalstöðinni.
Li irmiíitjnt
tíma. „Ég var í gífurlegra góðri æfingu
á þessum tíma enda hafði ég verið í
erfiðustu æfingabúðum sem um get-
ur. Þrjú sumur áður var ég að vinna
í hvalstöðinni þar sem ég vann tólf
tíma á dag við að lyfta 25 kílóa bitum
með annarri hendi upp á króka. Með
þessu komst ég í feikilega gott form
og þarna þjálfaðist skothöndin mæta
vel," sagði Jón Hjaltalín að lokum.
GAMLIR EN GÓÐIR Það
vantaði nokkra félaga sem
komust ekki á athöfnina.
.... 8*°8
|. i | í
• • i i
witca
Portsmouth vann West 1-0 á Upton Park í gærkvöld:
HARRY AÐ BAKTRYGGJA EVRÓPUSÆTIÐ
Harry Redknapp, knattspyrnu-
stjóri Portsmouth, hefur ósjaldan
lýst því yfir að metnaður hans með
liðið liggi í Evrópukeppnum. Hann er
nú þegar kominn með Portsmouth í
úrslit ensku bikarkeppninnar en sig-
urvegari þeirrar keppni fer í Evrópu-
keppni félagsliða. Hvorki Harry né
Portsmouth eru þó búnir að tryggja
sigur þar og með 1-0 sigri á West
Ham í gær þokast þeir nær 5. sæt-
inu deildinni sem gefur sæti í sömu
keppni.
Króatinn snjalli Nico Krancjar
skoraði eina mark leiksins með fal-
legu skoti af 20m færi eftir sendingu
Ghana-mannsins Sulley Muntari.
Nico eins og vinir hans kalla hann
eflaust er einn snjallasti leikmaður-
inn í úrvalsdeildinni en það er allt-
af unun að fylgjast með mönnum
sem sjá alltaf eitthvað annað en bara
sendingu á næsta mann. Nico hugs-
ar út fýrir kassan og gæti hæglega
farið lengra á komandi árum.
„Krancjar er gífurlega hæfileika-
ríkur," sagði Harry Redknapp um
markaskorarann eftir leik. „Strákur-
inn getur dúkkað upp hvar sem er og
skorað mörk. Hann æfir líka eins og
brjálæðingur, líka á frídögum. Það er
ekki furða að hann hefur ekki misst úr
leik síðan í október," bætti Redknapp
við en David Nugent fékk sjaldséð
tækifæri í byrjunarliði Portsmouth.
„Ég er ánægður fyrir hönd Nugents.
Hann þurfti virkilega á þessum leik
að halda og hann stóð sig vel."
Með sigrinum er Portsmouth að-
eins fjórum stigum frá Everton sem
sitja í fimmta sæti deildarinnar þeg-
ar fimm leikir eru eftir. Takist þeim á
einhvern undraverðan hátt að vinna
ekki ensku bikarkeppnina vilja þeir
hafa fimmta sætið í bakhöndinni og
þeir sækja grimmt að því. tomas&dv.is
Hafðu þig hægan
vinur Scott Parker á
ekki roö í tröllið sem er
Papa Bouba Diop.
Byrjum aftur
David Nugent, flopp Portsmouth, vill
byrja upp á nýtt hjá liðinu. Nugent kom
frá Preston á rúman milljarð fyrir
tímabilið en
hefur Iftið sem
ekkert getað.
Hann hefurekki
verið í
byrjunarliðinu
síðan f ágúst og
aðeins skorað
þrjú mörk.
Harry
Redknapp vildi
meira að segja selja hann nánast um
leið og hann keypti hann!„Þeir
borguðu mikinn pening fyrir mig og
það er kominn tími á að borga eitthvað
til baka. Ég er allur að koma til og fólk
færað sjá alvöru David Nugent
bráðum. Ég vil sanna mig og sýna
öllum að ég geti spilað í Úrvalsdeild-
inni." Nugent kom inn á f undanúrslita-
leik Portsmouth gegn WBA á laugardag
en tókst ekki að skora. Jermaine Defoe
má ekki spila bikarleikina og þvf er
pláss á bekknum fýrir Nugent f
úrslitaleiknum.„Viðerum komniralla
leið í úrslitaleikinn og ég vil að
sjálfsögðu vera hluti af því. Það var
gaman að taka þátt í leiknum á
laugardag og vonandi verður framhald
þar á," sagði hinn 22 ára Nugent.
Tímabilið búið hjá Cech
Tímabil Petrs Cech er búið. Hann lenti f
einhverju svakalegasta æfingarslysi
allra tfma þegar hann fékk Tai Ben
Haim á sig á
fullri ferð. Þurfti
að sauma 50
spor í andlti
Tékkans.„Við
sáum strax að
þetta var
alvarlegt.
Hvernig hann
féll niðurog
blóðið sem
fossaði út. Þetta var svakalegt að sjá og
allir vona að hann nái sér sem fýrst,"
sagði heimildarmaðurThe Sun. Cech
hefur ekki verið sá heppnasti með
meiðsli það sem af er tímabilinu en
hann var nýkominn til baka eftir
ökklaaðgerð. Þá spilar hann enn með
rúgbí-hjálm eftirað hafa höfuðkúpu-
brotnað fyrir einu og hálfu ári.„Þetta ár
hefur ekki verið gott fýrir hann. Þetta
eru þriðju meiðslin hans á einu tímabili
og nú virðist tímabiliö vera farið. Hann
leit vel út á æfingunni og þetta var bara
slys," sagði Avram Grant, stjóri Chelsea.
Stutt milli hláturs og gráturs
Ryan Giggs hélt upp á sinn 750. leik
með Manchester Únited á sunnudag
þegar liðið gerði jafntefli við Middles-
brough 2-2. Giggs var arfaslakur í
leiknum og nú virðist sem stuðnings-
menn séu búnir að fá nóg. Það hringdu
allavega nógu margir inn á MUTV til að
kvarta yfir hans frammistöðu.„Hann er
ekki að gera neitt núna. Hann lifirá
fornri frægð," sagði einn.„Hann er
búinn að vera frábær öll þessi ár og
skorað mörg eftirminnileg mörken
núna er ekkert að gerast í kringum
hann," sagði annar. Lou Macari kom þó
sínum manni til vamar.„Ef Alex
Ferguson velur hann f liðið er hann
nógu góður. Þessi gagnrýni kemur mér
mjög á óvart því hann hefur enn mikið
að bjóða." Giggs byrjaði að spila með
Manchester í mars 1991.
Ferdinand ekki brotinn
Río Ferdinand, varnarmaður
Manchester United, slapp við að brotna
á rist þegar hann meiddist (leik liðsins
gegn Middlesbrough og gæti spilað f
kvöld. Ferdinand, sem er 29 ára, þurfti
að fara af leikvelli eftir 70 mínútna leik á
Riverside-vellinum en Nemanja Vidic
haltraði einnig af velli gegn Roma f
síðustu viku.„Rio fór f myndatöku á
mánudag og við getum staðfest að
hann brotnaði ekki," var sagt (
yfirlýsingu á manutd.com. Manchester
United mætir Roma í kvöld í Meistara-
deild Evrópu á Old Trafford og hefur 2-
0 forskot eftir fyrri leikinn f Róm.