Peningamál - 01.05.2000, Page 28
Aðalatriðið er að við höldum þannig á okkar spilum
að dregið sé úr líkum á að slíkt gerist hér á landi.
Bankastjórn Seðlabankans hefur ákveðið að styrkja
enn frekar þennan þátt í starfsemi bankans og í því
skyni nýlega ráðið sérstakan starfsmann á skrifstofu
bankastjórnar til þessara verkefna.
Greiðslumiðlun
Seðlabankinn hefur í vaxandi mæli beint athygli
sinni að greiðslumiðlun eins og ég hef gert grein fyrir
hér á ársfundum bankans undanfarin tvö ár. Við
lagabreytingar árið 1998 fékk Seðlabanki Íslands það
hlutverk að stuðla að greiðri, hagkvæmri og öruggri
greiðslumiðlun innanlands og við útlönd. Í þessu
starfi hefur verið leitast við að hafa eins náið sam-
band við lánastofnanir í landinu og unnt er. Ýmsar
breytingar eru á döfinni og vil ég nefna þessar helst-
ar:
Unnið hefur verið að stofnun fyrirtækis um
rekstur greiðslujöfnunarkerfis og svokallaðrar RÁS-
þjónustu. Tilgangurinn með stofnun fyrirtækisins er
m.a. að veita nýjum aðilum tækifæri til sama aðgangs
að greiðslujöfnunarkerfinu og uppgjöri þess og nú-
verandi eigendur Reiknistofu bankanna hafa. Sérstök
verkefnisstjórn starfar að þessum undirbúningi. Er
þess vænst að hún ljúki störfum fljótlega.
Seðlabankinn hefur í samvinnu við viðskipta-
banka og sparisjóði undirbúið setningu reglna um
aðgengi greiðslukerfa að viðskiptareikningum í
Seðlabankanum. Undirbúningur þeirra reglna er á
lokastigi. Þá hefur bankinn og haft hug á að koma
upp greiðslukerfi fyrir stórar greiðslur sem yrði raun-
tímauppgjörskerfi. Það þýðir að greiðslur yfir til-
teknu hámarki yrðu gerðar upp þegar í stað og endan-
lega á viðskiptareikningum í Seðlabankanum.
Hér hafa verið nefnd dæmi um nokkur mikilvæg
mál sem hafa verið í undirbúningi á sviði greiðslu-
miðlunar. Þau hafa þann tilgang að tryggja öryggi í
greiðslumiðlun, að tryggja jafnan aðgang fjár-
málafyrirtækja að grunnþáttum greiðslumiðlunar og
að tryggja að greiðslumiðlunarkerfi hér á landi upp-
fylli alþjóðleg skilyrði.
Lokaorð
Góðir fundargestir!
Horfur í efnahagsmálum á alþjóðavettvangi hafa
farið batnandi að undanförnu. Það kemur sér vel fyrir
Íslendinga svo háðir sem við erum alþjóðaviðskipt-
um. Horfur í efnahagsmálum hér á landi eru einnig
góðar, en brýn nauðsyn er á að treysta stjórn á þeim
þáttum sem áhyggjum valda. Verðbólgan og við-
skiptahallinn valda því að þörf er mikils aðhalds
bæði í peningamálum og opinberum fjármálum.
Ljóst er að aðhald peningastefnunnar má síst vera
minna en nú er, og mun Seðlabankinn áfram leitast
við að leggja sitt af mörkum til að úr verðbólgunni
dragi og heitir á aðra sem þar geta komið við sögu að
leggjast á sömu sveif.
Um síðustu áramót varð sú breyting á stjórnkerf-
islegri stöðu Seðlabankans að yfirstjórn hans fluttist
frá viðskiptaráðherra til forsætisráðherra eins og áður
hefur komið fram. Seðlabankinn hefur átt mjög
ánægjulegt samstarf við starfsmenn viðskiptaráðu-
neytisins og viðskiptaráðherra sem hér er þakkað.
Það samstarf mun áfram haldast að því er snertir fjár-
málamarkaðina, en verður þó takmarkaðra en áður.
Seðlabankinn væntir góðs samstarfs við forsætis-
ráðherra og starfsmenn forsætisráðuneytisins. Það
samstarf hefur verið mikið og gott enda eðlilegt þar
sem yfirstjórn efnahagsmála er í höndum forsætis-
ráðherra. Ég þakka einnig ánægjulegt samstarf við
önnur stjórnvöld og fjármálastofnanir í landinu.
PENINGAMÁL 2000/2 27