Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2008, Blaðsíða 60
60 FÖSTUDAGUR 16. MAl 2008
Tíska DV
l mmi
NÝTT ANDLIT MIU MIU
Franska söng- og leikkonan Vanessa
Paradis kemur til meö aö vera nýjasta
andlitið í auglýsingaherferð Miu Miu.
Vanessa sem á tvö börn með eigin-
manni sínum Johnny Depp leysir
þar með leikkonuna Kirsten Dunst af
hólmi en Maggie Gyllenhaal, Laetitia
Casta og Líndsay Lohan hafa allar set-
ið fyrir í auglýsingum Miu Miu.
ÚTIDRESSIÐ
DV-mynd Ásgeir
GUTRANDI
HÖNNUN
LOHAN
Lindsay Lohan tilkynnti í
mars að hún ætlaði að hefja
framleiðslu á sérhönnuðum
leggingsbuxum undir nafni
sínu. 1 vikunni sást svo til
Lindsay á götum LA með
fyrirsætu sér við hlið að mynda
nýju leggingsbuxurnar sem
væntanlegar eru í verslanir
á næstu mánuðum. Það er
ekki annað að sjá en buxurnar
séu mjög lekkerar, glansandi
og glimmerskreyttar, með
rennilásum og hnésbótum.
HÆTTULEGIR
LOKKAR
Lýtalæknar í Ameríku segj-
ast finna fyrir mikiili aukningu
í aðgerðum á eyrnasneplum
ungra kvenna.
Ástæðan ku
vera að stúlk-
ur sem ganga
of mikið með
stóra eyrna-
lokka eyði-
leggja smám
saman á sér
eyrnasnepl-
ana. Þannig geta of þungir eyrna-
lokkar stækkað götin í eyrunum
og þar af leiðandi byrja eyrna-
sneplarnir að lafa. Það er hins
vegar ekkert sem bannar stúlk-
um að skreyta sig með fögrum
lokkum áður en haldið er út á líf-
ið en varasamt er að ganga dags-
daglega um með of þunga lokka.
VERIÐ
ÓHRÆDDAR
Förðunarmeistarar ytra leggja
nú áherslu á að konur eigi ekki
að vera hræddar við að nota
liti eins og bleika tóna á augun,
þeir draga fram bláa og græna
litinn í augunum og ef við bæt-
um smá koparlit eða brúnum
tóni við þann bleika erum við
með fullkomna litasamsetn-
ingu fýrir brún augu. Einnig
eru konur hvattar til að hvíla
svarta maskarann í sumar. Próf-
aðu brúnan, bláan eða grænan
maskara, það gæti komið þér á
óvart hvað það gerir mikið fyrir
augun.
Sixpensari: Keyptur á markaði I
Clermont. Jakki: Urban Outfitters.
Hettupeysa: Moods of Norway. Buxur:
Camden í London. Kúrekastígvél:
Kúrekabúð I Flórída.
„Ég keypti þessar buxur I London fyrir
70's partí sem ég var á leiðinni (. Svo er
ég mjög ánaegður með kúrekastígvélin
sem ég keypti í kúrekabúð í Flórída.
Þegar ég kom að kassanum var mér sagt
að það væri tilboð, ef maður keypti eitt
par fengi maður tvö pör frítt svo ég fór
út nokkuð sáttur með þrjú pör af
stlgvélum."
Sjóliðapeysa: Moods of Norway.
Gallabuxur: Levi's.
„Ég dreg þessar eldgömlu Levi's-buxur
mlnar fram af og til þegar allt annaö er
skltugt en þær eru mjög þægilegar."
INNIFÖTIN
IKOFLOTTU
A DJAMMINU
Henrý Þór Reynisson er einn af eigendum
verslunarinnar Moods of Norway sem var opnuð með
pompi og prakt á Hverfisgötu 37 nú á dögunum. Ásamt því
að selja falleg föt bakar Henrý líka fallegar kökur en hann er
bakarameistari að mennt og hefur farið mikinn í faginu
undanfarin ár.
Stuttermaskyrta: Moods of Norway.
Svart vesti: Moods of Norway. Bindi:
Urban Outfitters. Gallabuxur: Moods
Spenderjeans. Belti: Moods of Norway.
Kúrekaskór: Kúrekabúð i Flórída.
.1
„Þar sem ég vinn i Moods of Norway verð
ég auðvitað að vera I sem mestu úr
versluninni þegar ég er I vinnunni."
Jakkaföt: Moods of Norway. Peysa:
Moods of Norway. Strigaskór: Lacoste,
keyptir I Kaliforniu
„Mérfinnst alltaf gaman að vera svolftið
ööruvísi þegarég kíki út á Iffið."