Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2008, Side 68
68 FÖSTUDAGUR 16. MAl 2008
Fólkið DV
MUGISON:
Mugison er á heimleið eftir
viðburðaríka tónleikaferð
með Queens of the Stone Age.
„Þetta gekk bara mjög vel og var alveg hrikalega gam-
an," segir Örn Elías Guðmundsson betur þekktur sem
Mugison. „Við spiluðum á 15 tónleikum í heildina og þar
af 11 með Queens of the stone age," en Mugison var staddur
í New York á heimleið þegar DV náði tali af honum.
„Þeir voru alveg mega kúl við okkur," segir Mugison um
meðlimi QOTSA. „Þeir settu engin hávaðatakmörk eins og oft
er gert og krúið þerra hjálpaði okkur alveg helling." Mugison segist
hafa verið sérlega ánægður með aðdáendur sveitarinnar og segir
þá alltaf hafa tekið vel á móti sér og hljómsveitarmeðlimum sín-
um. „Eftirminnilegast var þegar við spiluðum í smábænum Saskat-
oon. Það er eins konar Blönduós Kanadamanna, svona bær sem allir
keyra í gegnum. Þar gjörsamlega sturluðust áhorfendur og við á móti.
Við vorum alveg kengbilaðir með kúrekahatta," og segir Mugison að
það hafi bara vantað Patrick Swayze á gólfið til að fullkomna þetta.
Tónleikaferð Mugisons og félaga er þó einungis rétt að byrja. Sveitin
stoppar heima í nokkra daga og heldur svo út á ný. „Við byrjum í Bret-
landi og förum svo til Danmerkur, Þýskalands og Sviss." Eftir það verður
haldið heim á ný þar sem stoppað verður stutt aftur. „Við fáum tveggja
vikna pásu og svo förum við út aftur." asgeir@dv.is
'■’-a-,.'.,
SÍMON
ÁVÍSI
Blaðamaðurinn knái Símon
Birgisson hefur ráðið sig í vinnu
á Vísir.is í sumar. Munu þar
verða mikiir endurfundir, þar
sem Símon mun starfa ásamt
sínum gömlu félögum á DV,
þeim Óskari Hrafni Þorvalds-
wni, Breka Logasyni og Andra
Ólafssyni, en Breki, Andri og
Símon voru helstu fréttahaukar
DV í ritstjórnartíð Mikaels Torfa-
sonar. Símon hefur alið mann-
inn í listaháskólanum undan-
farið, þar sem hann lærir fræði
og framkvæmd í leiklistardeild.
Næsta haust heldur hann til
Þýskalands í skiptinám, en svo
tekur við ritgerð og lokaverkefni.
Mugison Erréttað
byrja tónleikaferð slna.
Rapparinn Erpur Eyvindarson var
kominn fyrir utan Nývang, leikvang
Barcelona, klæddur í splunkunýja
Barcelona-treyju og með trefil í stíl,
þegar hann komst að því að miðarn-
ir sem voru væntanlegir hefðu klikk-
að. Erpur hefur undanfarnar vikur
dvalið í Barcelona eins og DV hefur
greint frá og átti knattspyrnuleikur á
milli Barcelona og Valencia að vera
hluti af fríinu. Neyddust því Erpur og
félagar hans til að fylgjast með leikn-
um á knæpu stutt frá leikvanginum.
Erpur lét þó miðaleysið ekki á sig fá,
og hét því stórkostiega nafni á MSN
á dögunum. „Valencia - Barcelona,
sex mörk, Eiður inná þvílík upplif-
un." Eða ekki.
„Ég vil nú ekki vera að gera mikið úr þessu, enda er öm-
urlegt þegar lið er að stæra sig af því hvaða stjörnur það
hitti á fylliríi," segir plötusnúðurinn og upptökustjórinn
Daníel Ólafsson, betur þekkíur sem Danni Deluxxx, en
kappinn skemmti sér með söngkonunni Erykuh Badu
í Boston á dögunum. „Ég lenti á spjalli við rapparann
Jay Electronica sem er kærasti Badu. Hann tók mig í
VlP-herbergið, þar sem hann kynnti mig fyrir Erykuh
og nokkrum meðlimum hljómsveitarinnar The Roots,"
segir Daníel, og bætir hlæjandi við að Erykah hafði
nokkurn áhuga á íslandi, þó að kærasti hennar hafi
verið ívið áhugasamari.„Þetta var óttalegt djamm og
mikill hávaði, en gaman samt. Ég efast nú stórlega um
að ég sé að fara gera takta fýrir þetta lið, en við verðum
bara að sjá hvað setur. Ég var eiginlega nýlentur þegar
ég mætti á tónleikana og útskýrði því fýrir þeim hversu
fjarstæðukenndar þessar aðstæður væru fýrir mér. Þá
fékk ég svarið „ekkert gerist af ástæðulausu" sem mér
fannst nokkuð sniðugt," segir Daníel, sem var stadd-
ur í Boston til þess að heimsækja félaga sinn. Danni
Deluxxx spilar á Hverfisbamum í kvöld og hefst gleðin
um miðnætti. dori@dv.is
Ekki málið Danni Deluxxx
og Erykah Badu.