Glóðafeykir - 01.04.1969, Page 9
GLÓÐAFEYKIR
9
þó að ég fargi þeim, því að sjálfsagt mundi ég kunna illa við mig
hestlaus. .\nnars er nokkuð dýrt að eiga hér hest, kostnaður aldrei
undir 7—8 þús. kr. á ári, ef allt er reiknað. Jónas á Völlum hefur
verið mín hjálparhella með þessa hestaeign. Hjá honum hef ég
fengið hey og aldrei þurft að borga fyrr en mér hentaði. Það eru
góð kjör.
Og við höldum áfram að tala um hesta, enda eru þeir Guðmundi
kært umræðuefni.
— Ég held, að íslenzka hestinum hafi allavega farið fram á síðustu
árum, segir hann. Kemur þar auðvitað ýmisíegt til. Tíðarfar hefur
t. d. verið mikið betra s.l. 40 ár en lensíi áður oer meðferð hrossanna
O O
yfirleitt hefur þar að auki batnað. A kappreiðum og hestamótum
hefur það sýnt sig, að hestinum er að fara fram. Ég hef ekki séð
betur ríðandi jafn stóran hóp manna og á Hólamótinu. Auðvitað
er alltaf til eitthvað af hestum í slíkum hópi, sem skemmir heildar-
myndina en það breytir ekki hinu og hestarnir hafa alltaf verið
og verða, auðvitað, misjafnir. Áður fyrr var til færra af góðum
hestum og því bar meira á þeim. Nú eru þeir jafnari. Stundum heyr-
ist sagt, að hestar séu í afturför vegna notkunarleysis. Slíkt kann
að vera til en þó er þetta vafasöm kenning. Ofnotkun er hættuleg.
Við hana tapar hesturinn mýkt og öðrum kostum. Það er nauðsyn-
legt að hreyfa hann en sjálf notkunin verður að vera í hófi.
— Svo við förum nii snöggvast af baki, Guðmundur, þú hefur
lengi fengizt við smíðar, einkum húsabyggingar, hjá hverjum lærðir
þú iðnina?
— Ég er nú ekki iðnlærður í þeim skilningi, sem nú er lagður í
það orð. Mætti því sjálfsagt, þess vegna, telja mig í fúskaraflokknum.
En ég vann við smíðar hjá Páli heitnum Jónssyni í 4 vetur og nátt-
úrulega kauplaust. Síðar vann ég svo hjá honum bæði hér á Sauð-
árkróki og á Siglufirði, og þá að sjálfsögðu fyrir kaup. í þá daga var
um engan iðnskóla að ræða og raunar lítið lagt upp úr þess háttar
námi fyrir iðnaðarmenn, því var nú verr. Húsabyggingar þá voru
líka raunar með öðrum hætti en nú. Hugsað var fyrst og fremst um
að gera húsin þannig úr garði, að hægt væri að flytja inn í þau og
að þau væru þá eitthvað vistlegri mannabústaðir en torfkofarnir.
Flestir voru fátækir, en urðu þó að kosta þessar byggingar sjálfir. Þá
var ekki hægt að labba inn í banka og biðja bóngóðan bankastjóra
að lána sér nokkra tugi eða hundruð þús. því að nii ætti að fara að
byggja.
Annars var ég aldrei beint hneigður fyrir smíðar, þótt ég færi