Glóðafeykir - 01.04.1969, Síða 9

Glóðafeykir - 01.04.1969, Síða 9
GLÓÐAFEYKIR 9 þó að ég fargi þeim, því að sjálfsagt mundi ég kunna illa við mig hestlaus. .\nnars er nokkuð dýrt að eiga hér hest, kostnaður aldrei undir 7—8 þús. kr. á ári, ef allt er reiknað. Jónas á Völlum hefur verið mín hjálparhella með þessa hestaeign. Hjá honum hef ég fengið hey og aldrei þurft að borga fyrr en mér hentaði. Það eru góð kjör. Og við höldum áfram að tala um hesta, enda eru þeir Guðmundi kært umræðuefni. — Ég held, að íslenzka hestinum hafi allavega farið fram á síðustu árum, segir hann. Kemur þar auðvitað ýmisíegt til. Tíðarfar hefur t. d. verið mikið betra s.l. 40 ár en lensíi áður oer meðferð hrossanna O O yfirleitt hefur þar að auki batnað. A kappreiðum og hestamótum hefur það sýnt sig, að hestinum er að fara fram. Ég hef ekki séð betur ríðandi jafn stóran hóp manna og á Hólamótinu. Auðvitað er alltaf til eitthvað af hestum í slíkum hópi, sem skemmir heildar- myndina en það breytir ekki hinu og hestarnir hafa alltaf verið og verða, auðvitað, misjafnir. Áður fyrr var til færra af góðum hestum og því bar meira á þeim. Nú eru þeir jafnari. Stundum heyr- ist sagt, að hestar séu í afturför vegna notkunarleysis. Slíkt kann að vera til en þó er þetta vafasöm kenning. Ofnotkun er hættuleg. Við hana tapar hesturinn mýkt og öðrum kostum. Það er nauðsyn- legt að hreyfa hann en sjálf notkunin verður að vera í hófi. — Svo við förum nii snöggvast af baki, Guðmundur, þú hefur lengi fengizt við smíðar, einkum húsabyggingar, hjá hverjum lærðir þú iðnina? — Ég er nú ekki iðnlærður í þeim skilningi, sem nú er lagður í það orð. Mætti því sjálfsagt, þess vegna, telja mig í fúskaraflokknum. En ég vann við smíðar hjá Páli heitnum Jónssyni í 4 vetur og nátt- úrulega kauplaust. Síðar vann ég svo hjá honum bæði hér á Sauð- árkróki og á Siglufirði, og þá að sjálfsögðu fyrir kaup. í þá daga var um engan iðnskóla að ræða og raunar lítið lagt upp úr þess háttar námi fyrir iðnaðarmenn, því var nú verr. Húsabyggingar þá voru líka raunar með öðrum hætti en nú. Hugsað var fyrst og fremst um að gera húsin þannig úr garði, að hægt væri að flytja inn í þau og að þau væru þá eitthvað vistlegri mannabústaðir en torfkofarnir. Flestir voru fátækir, en urðu þó að kosta þessar byggingar sjálfir. Þá var ekki hægt að labba inn í banka og biðja bóngóðan bankastjóra að lána sér nokkra tugi eða hundruð þús. því að nii ætti að fara að byggja. Annars var ég aldrei beint hneigður fyrir smíðar, þótt ég færi

x

Glóðafeykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.