Glóðafeykir - 01.04.1969, Side 13
GLÓÐAFEYKIR
13
Sauðfjárslátrun 1968
Sauðfjárslátrun hófst hjá Kaupfélaginu mánudaginn 16. sept. eða
5 dögum síðar en haustið á undan, og lauk fimmtudaginn 24. októ-
ber. Ekki var jafnað niður á laugardaga.
Lofað sláturfé var 46.389 stk., en slátrað var alls 42.772 fjár, þar
af voru dilkar 39.535, en geldfé og roskið 3.237. Heim var tekið
207 kindur, og til innleggs komu því 42.565.
Kjötflokkun og þungi var mun betri en haustið næst á undan.
Meðalfallþungi dilka, miðað við innvigtun með mör, reyndist
14.568 kg á móti 14.166 kg haustið 1967, og hafði því aukizt um
0,402 kg. Ef litið er aftur til ársins 1966, þá hefur meðalfallþungi
dilka aukizt um 1.1 kg á þessum tveimur árum.
Heildakjötinnlegg var 636 tonn og hafði vaxið um 25 tonn frá
1967.
Mismunur á kjötflokkum milli ára, var sem hér segir:
D - I.
I) - II.
D - III.
D - IV.
Flokkun 1968 í %
af kjötþunga
59,91
24,15
15,40
0,54
Flokkun 1967 í %
af kjötþunga
54,37
30,92
14,51
0,20
Sunnudaginn 29. sept. brast á með miklu hríðarveðri og fann-
komu. Það varð til þess, að Hraksíðuáin, er sláturhúsið fær vatn
frá, krapaði upp og hvarf vatnið að fullu. Vegna vatnsleysis var að-
eins hægt að slátra um 350 kindum á mánudaginn, og kom vatnið
ekki aftur að fullu fyrr en á þriðjudag. 4 il þess að jafna vikuslátr-
unina var því gripið til þess ráðs, að lóga á laugardaginn 5. okt.
Fyrir utan þann beina skaða er bændur urðu fyrir við það, hvað
lömbin lögðu mikið af í þessum hríðarofsa, þá skipti það einnig
hundruðum þúsunda hvað sláturkostnaður hefur orðið meiri vegna
vatnsleysisins.
Vonandi verður hægt í framtíðinni að koma í veg fvrir slíkt tjón,
sem vatnsskortur hefur í för með sér.