Glóðafeykir - 01.04.1969, Page 13

Glóðafeykir - 01.04.1969, Page 13
GLÓÐAFEYKIR 13 Sauðfjárslátrun 1968 Sauðfjárslátrun hófst hjá Kaupfélaginu mánudaginn 16. sept. eða 5 dögum síðar en haustið á undan, og lauk fimmtudaginn 24. októ- ber. Ekki var jafnað niður á laugardaga. Lofað sláturfé var 46.389 stk., en slátrað var alls 42.772 fjár, þar af voru dilkar 39.535, en geldfé og roskið 3.237. Heim var tekið 207 kindur, og til innleggs komu því 42.565. Kjötflokkun og þungi var mun betri en haustið næst á undan. Meðalfallþungi dilka, miðað við innvigtun með mör, reyndist 14.568 kg á móti 14.166 kg haustið 1967, og hafði því aukizt um 0,402 kg. Ef litið er aftur til ársins 1966, þá hefur meðalfallþungi dilka aukizt um 1.1 kg á þessum tveimur árum. Heildakjötinnlegg var 636 tonn og hafði vaxið um 25 tonn frá 1967. Mismunur á kjötflokkum milli ára, var sem hér segir: D - I. I) - II. D - III. D - IV. Flokkun 1968 í % af kjötþunga 59,91 24,15 15,40 0,54 Flokkun 1967 í % af kjötþunga 54,37 30,92 14,51 0,20 Sunnudaginn 29. sept. brast á með miklu hríðarveðri og fann- komu. Það varð til þess, að Hraksíðuáin, er sláturhúsið fær vatn frá, krapaði upp og hvarf vatnið að fullu. Vegna vatnsleysis var að- eins hægt að slátra um 350 kindum á mánudaginn, og kom vatnið ekki aftur að fullu fyrr en á þriðjudag. 4 il þess að jafna vikuslátr- unina var því gripið til þess ráðs, að lóga á laugardaginn 5. okt. Fyrir utan þann beina skaða er bændur urðu fyrir við það, hvað lömbin lögðu mikið af í þessum hríðarofsa, þá skipti það einnig hundruðum þúsunda hvað sláturkostnaður hefur orðið meiri vegna vatnsleysisins. Vonandi verður hægt í framtíðinni að koma í veg fvrir slíkt tjón, sem vatnsskortur hefur í för með sér.

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.