Glóðafeykir - 01.04.1969, Page 15

Glóðafeykir - 01.04.1969, Page 15
GLÓÐAFEYKIR 15 SPJALLAÐ VIÐ BÆNDUR 6. DESEMBER 1968. Nýrmörsafsláttur Umsjón þáttarins: SVEINN HALLGRÍMSSON. Þættinum hefur borizt bréf frá Jökuldælingi. Hann segir í fyrri hluta bréfsins: „Eg sendi hér spurningu um atriði sem menn eru ekki á eitt sáttir um. Er sláturhafa heimilt að draga frá verðlagsgrundvallarverði dilka- kjöts það sem nemur þunga nýrmörs og hvað er talið að það nemi í krónutölu á hvert kíló kjöts á verðlagsárinu 1967—’68.“ Við þessu er því að svara, að verðlagsgrundvallarverð miðast við kjöt án nýrmörs. Svarið er því, að það sé heimilt og rétt að draga nýrmör frá þegar hann er vigtaður með, eins og gert er fyrir út- flutning. Það mun vera misjafnt, hve mikið er dregið frá vegna nýrmörs, en þó eru sumstaðar dregin frá 500 grömm. Þetta hygg ég að sé of lítið og nær réttu lagi að draga frá 700 grömm — þó það fari að sjálfsögðu eftir ásigkomulagi lamba og þunga. Enda mun sá háttur á hafður sumstaðar að draga frá ákveð- inn hundraðshluta fallþunga. Mun það oft miðið við 5%, sem gera 700 grömm á 14 kg lamb. Ef miðað er við 5%, sem draga á frá vegna mörs, verða þetta um 3 krónur og 80 aura á kg — eða um 2.80 kr. ef miðað er við 500 grömm af mör. Jökuldælingur heldur svo áfram og segir: „Og ef svo er hvernig er þá hagað til með þann mismun sem skapast af því að það kjöt, sem út er flutt, er selt með nýrmörnum í skrokknum?“ Reikningslega kemur þetta út á þann hátt, að út eru flutt fleiri kg en keypt eru af bændum, og ætti það að vera 5% meira, ef nýr- mör er 5% af fallþunga, en 500 gr á skrokk ef dregin eru frá 500 gr vegna nýrmörs. Viðkomandi sláturhús grœðir hins vegar ekki á þessu.

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.