Glóðafeykir - 01.04.1969, Síða 15
GLÓÐAFEYKIR
15
SPJALLAÐ VIÐ BÆNDUR 6. DESEMBER 1968.
Nýrmörsafsláttur
Umsjón þáttarins: SVEINN HALLGRÍMSSON.
Þættinum hefur borizt bréf frá Jökuldælingi. Hann segir í fyrri
hluta bréfsins:
„Eg sendi hér spurningu um atriði sem menn eru ekki á eitt
sáttir um.
Er sláturhafa heimilt að draga frá verðlagsgrundvallarverði dilka-
kjöts það sem nemur þunga nýrmörs og hvað er talið að það nemi
í krónutölu á hvert kíló kjöts á verðlagsárinu 1967—’68.“
Við þessu er því að svara, að verðlagsgrundvallarverð miðast við
kjöt án nýrmörs. Svarið er því, að það sé heimilt og rétt að draga
nýrmör frá þegar hann er vigtaður með, eins og gert er fyrir út-
flutning.
Það mun vera misjafnt, hve mikið er dregið frá vegna nýrmörs, en
þó eru sumstaðar dregin frá 500 grömm.
Þetta hygg ég að sé of lítið og nær réttu lagi að draga frá 700
grömm — þó það fari að sjálfsögðu eftir ásigkomulagi lamba og
þunga. Enda mun sá háttur á hafður sumstaðar að draga frá ákveð-
inn hundraðshluta fallþunga. Mun það oft miðið við 5%, sem gera
700 grömm á 14 kg lamb.
Ef miðað er við 5%, sem draga á frá vegna mörs, verða þetta um
3 krónur og 80 aura á kg — eða um 2.80 kr. ef miðað er við 500
grömm af mör.
Jökuldælingur heldur svo áfram og segir:
„Og ef svo er hvernig er þá hagað til með þann mismun sem
skapast af því að það kjöt, sem út er flutt, er selt með nýrmörnum
í skrokknum?“
Reikningslega kemur þetta út á þann hátt, að út eru flutt fleiri
kg en keypt eru af bændum, og ætti það að vera 5% meira, ef nýr-
mör er 5% af fallþunga, en 500 gr á skrokk ef dregin eru frá 500 gr
vegna nýrmörs.
Viðkomandi sláturhús grœðir hins vegar ekki á þessu.