Glóðafeykir - 01.04.1969, Page 16
16
GLÓÐAFEYKIR
Það sem gerist er, að minni útflutningsuppbætur þarf á hvert kg,
eða sem nemur 5% ef mörinn er reiknaður 5% af fallþunga.
Það sem verið er að gera með þessurn mörfrádrætti er, að láta alla
fá jafnt verð, hvort sem kjötið fer í útflutning eða ekki, enda er það
aðallega háð því, hversu gott sláturhúsið er, en ekki þ\ í, að kjötið
sé endilega betra frá framleiðandanum á viðkomandi svæði, þó mun
það oftast tilfellið líka.
Það er erfitt að gera þessu efni full skil í stuttum útvarpsþætti,
en ég vona að það sé ljóst, að grundvallarverð miðast við kjöt án
nýrmörs og það á að gilda fyrir alla jafnvel þó kjötið frá þeirn fari
í útflutning.
Utibú í Hofsósi
Erfiðlega hefur gengið að undanförnu með rekstur hjá Kaupfé-
lagi Austur-Skagfirðinga í Hofsósi.
Þar sem verzlunin var í miklum vanda stödd, varð það að sam-
komulagi milli stjórna kaupfélaganna hér á Sauðárkróki og í Hofs-
ósi, að Kaupfélag Skagfirðinga yfirtæki verzlunina í Hofsósi frá og
með 1. desember s.l.
Ekki hefur verið um neina sameiningu þessara félaga að ræða,
enn sem komið er, en K. S. hefur tekið á leigu verzlunarhús K.A.S.H.
og yfirtók jafnframt þær vörubirgðir er fyrir hendi voru, og opnaði
K.S. útibúið þann 3. desember s.l..
Ekki er ennþá frágengið hvernig verður með slátrun þess fjár,
er KASH hefur haft með að gera.
Útibússtjóri hefur verið ráðinn Óli M. Þorsteinsson frá Hofsósi,
en að öðru leyti er sama starfsfólk við afgreiðslu og var hjá K.A.S.H.
HRT.