Glóðafeykir - 01.04.1969, Side 16

Glóðafeykir - 01.04.1969, Side 16
16 GLÓÐAFEYKIR Það sem gerist er, að minni útflutningsuppbætur þarf á hvert kg, eða sem nemur 5% ef mörinn er reiknaður 5% af fallþunga. Það sem verið er að gera með þessurn mörfrádrætti er, að láta alla fá jafnt verð, hvort sem kjötið fer í útflutning eða ekki, enda er það aðallega háð því, hversu gott sláturhúsið er, en ekki þ\ í, að kjötið sé endilega betra frá framleiðandanum á viðkomandi svæði, þó mun það oftast tilfellið líka. Það er erfitt að gera þessu efni full skil í stuttum útvarpsþætti, en ég vona að það sé ljóst, að grundvallarverð miðast við kjöt án nýrmörs og það á að gilda fyrir alla jafnvel þó kjötið frá þeirn fari í útflutning. Utibú í Hofsósi Erfiðlega hefur gengið að undanförnu með rekstur hjá Kaupfé- lagi Austur-Skagfirðinga í Hofsósi. Þar sem verzlunin var í miklum vanda stödd, varð það að sam- komulagi milli stjórna kaupfélaganna hér á Sauðárkróki og í Hofs- ósi, að Kaupfélag Skagfirðinga yfirtæki verzlunina í Hofsósi frá og með 1. desember s.l. Ekki hefur verið um neina sameiningu þessara félaga að ræða, enn sem komið er, en K. S. hefur tekið á leigu verzlunarhús K.A.S.H. og yfirtók jafnframt þær vörubirgðir er fyrir hendi voru, og opnaði K.S. útibúið þann 3. desember s.l.. Ekki er ennþá frágengið hvernig verður með slátrun þess fjár, er KASH hefur haft með að gera. Útibússtjóri hefur verið ráðinn Óli M. Þorsteinsson frá Hofsósi, en að öðru leyti er sama starfsfólk við afgreiðslu og var hjá K.A.S.H. HRT.

x

Glóðafeykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.