Glóðafeykir - 01.04.1969, Side 17
GLÓÐAFEYKIR
17
Unga fólkið og samvinnufélögin
Hvaðanæva að úr víðri veröld berast nú um þessar mundir fregn-
ir a£ því að unga fólkið sé í uppreisnarhug. Hvort sem það nú var
menningarbylting Maoista í Kína eða eitthvað annað, sem var upp-
hafið að öllu saman, þá hefur þessi hreyfing unga fólksins farið eins
og alda um allan heiminn. Mótmæli þess og óánægja beinast í ýms-
ar áttir: að spillingu á sviði stjórnmála og fjármála, að úreltu skipu-
iagi fræðslumálanna, en þó fyrst og fremst að því, sem það kallar
,,kerfið“, en það eru þau vinnubrögð í þjóðfélagsmálum, sem eldri
kynslóðir hafa komið á, og ekki finna náð í augum hinna ungu.
Það er ekki alltaf jafnljóst, hvað koma á í stað þess, sem fordæmt
er, en hvað er að fást um það. Fyrst er að finna, hvað að er, og síðan
að leita úrbóta.
Þessari miklu öldu hefur sannarlega einnig skolað á land á okkar
norðlægu ströndum. Undanfarna mánuði hefur hver félagsskap-
urinn á fætur öðrum og þá sérstaklega stjórnmálafélögin boðað
unga fólkið á fundi og ráðstefnur til að draga merki þessarar bylt-
ingar að húni, gagnrýna „kerfið" og krefjast endurnýjunar manna
og málefna.
Um undanfarið árabil hefur það verið til siðs að fullyrða að
unga fólkið hafi ekki áhuga á félagsmálum. Atburðir seinustu mán-
aða hafa sannað svo ekki verður um villzt haldleysi þeirrar full-
yrðingar.
En meðan öllu þessu fer fram bíða samvinnumenn þess lang-
eygðir að unga kynslóðin láti málefni samvinnufélaganna til sín
taka. Það dylst ekki þeim, sem nokkuð þekkja til þeirra, að þau
eru fyrst og fremst félög fullorðna fólksins. Unga fólkið fjölmennir
ekki á fundi þeirra og sýnir málefnum þeirra víðast hvar næsta lít-
inn áhuga. Engann þarf að undra þó að sveitafólk, sem komið er
yfir miðjan aldur, kunni vel að meta samvinnufélög sín. Það fer
ekkert á milli mála að starfsemi þeirra á undanförnum áratugum
hefur gerbreytt efnahags- og þjóðfélagsaðstöðu þess til hins betra og
er sú saga alltof kunn til að hún verði rakin hér. En sú bylting í
aðstöðu sveitafólksins, sem starfsemi samvinnufélaganna hafði í för
með sér, er um garð gengin, og nú eru félögin svo sjálfsagður dráttur