Glóðafeykir - 01.04.1969, Síða 17

Glóðafeykir - 01.04.1969, Síða 17
GLÓÐAFEYKIR 17 Unga fólkið og samvinnufélögin Hvaðanæva að úr víðri veröld berast nú um þessar mundir fregn- ir a£ því að unga fólkið sé í uppreisnarhug. Hvort sem það nú var menningarbylting Maoista í Kína eða eitthvað annað, sem var upp- hafið að öllu saman, þá hefur þessi hreyfing unga fólksins farið eins og alda um allan heiminn. Mótmæli þess og óánægja beinast í ýms- ar áttir: að spillingu á sviði stjórnmála og fjármála, að úreltu skipu- iagi fræðslumálanna, en þó fyrst og fremst að því, sem það kallar ,,kerfið“, en það eru þau vinnubrögð í þjóðfélagsmálum, sem eldri kynslóðir hafa komið á, og ekki finna náð í augum hinna ungu. Það er ekki alltaf jafnljóst, hvað koma á í stað þess, sem fordæmt er, en hvað er að fást um það. Fyrst er að finna, hvað að er, og síðan að leita úrbóta. Þessari miklu öldu hefur sannarlega einnig skolað á land á okkar norðlægu ströndum. Undanfarna mánuði hefur hver félagsskap- urinn á fætur öðrum og þá sérstaklega stjórnmálafélögin boðað unga fólkið á fundi og ráðstefnur til að draga merki þessarar bylt- ingar að húni, gagnrýna „kerfið" og krefjast endurnýjunar manna og málefna. Um undanfarið árabil hefur það verið til siðs að fullyrða að unga fólkið hafi ekki áhuga á félagsmálum. Atburðir seinustu mán- aða hafa sannað svo ekki verður um villzt haldleysi þeirrar full- yrðingar. En meðan öllu þessu fer fram bíða samvinnumenn þess lang- eygðir að unga kynslóðin láti málefni samvinnufélaganna til sín taka. Það dylst ekki þeim, sem nokkuð þekkja til þeirra, að þau eru fyrst og fremst félög fullorðna fólksins. Unga fólkið fjölmennir ekki á fundi þeirra og sýnir málefnum þeirra víðast hvar næsta lít- inn áhuga. Engann þarf að undra þó að sveitafólk, sem komið er yfir miðjan aldur, kunni vel að meta samvinnufélög sín. Það fer ekkert á milli mála að starfsemi þeirra á undanförnum áratugum hefur gerbreytt efnahags- og þjóðfélagsaðstöðu þess til hins betra og er sú saga alltof kunn til að hún verði rakin hér. En sú bylting í aðstöðu sveitafólksins, sem starfsemi samvinnufélaganna hafði í för með sér, er um garð gengin, og nú eru félögin svo sjálfsagður dráttur

x

Glóðafeykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.