Glóðafeykir - 01.04.1969, Page 20

Glóðafeykir - 01.04.1969, Page 20
20 GLÓÐAFEYKIR Þetta sögðu þeir — Jóhann Hannesson prófessor: „Nútímamenning er óhugsandi án sérfræðinga og sennilega öll hámenning. Smávægilegustu sjúkdómar eru athugaðir af sérfróðum mönnum, svo hálærðum að þeir vita allt um blóð og þvag, en lítið um sjúklinga í heilu lagi. Nú er vitað og með þakklæti viðurkennt að sérfræðingar í lœknastétt bjarga fjölda mannslífa, enda hvílir sið- gæði stéttarinnar og mannúð á aldagömlum arfi frá ágætismönnum. En svo er aðeins um brot af sérfræðingum nútímans. Vér megum ekki skipta um frá vinstri til hægri umferðar nema með aðstoð inn- lendra og erlendra sérfræðinga, löngu á undan og eftir breyting- unni, og er þó breytingin smávægileg, nánast hégómi í samanburði við mikilvæg þjóðmál. Vörur verða ekki auglýstar svo vel sé, né börn vel alin upp, né hús byggð án afskipta sérfræðinga. . . . Kóngar gátu stundum sett sig í sæti sérfræðinga, enda sagði einn þeirra berum orðum: „Vér einir vitum .. . hvað ríkinu má helzt til heilla verða.“ Enginn nútíma valdhafi veit svo rnikið, heldur hafa menn hópa af sérfræðingum til að rannsaka það sem ríkinu er til bölvunar eða blessunar, og veitir sízt af, eftir tilkomu tækninnar. Sérfræðingar stofna til vandræða, og aðrir sérfræðingar greiða úr vandræðum — báðir aðilar af sérfræðilegri kunnáttu. Að þjóð vorri steðjaði árið 1967 aflabrestur, verðfall á útflutningsvörum, innlent sjónvarp, kal í túnum, gengislækkun, yfirvofandi umferðarbreyting, ósigrar í knattspyrnu, sterkt benzín og við lá að kæmi sterkur bjór — og hvarvetna koma sérfræðingar við sögu, ýmist til að greiða úr vandræðum eða ala á þeim. Margt hjakkar reyndar í sama fari og virðist hvorki fara aftur né fram, svo sem uppeldismálum og skóla- bókaoerð. Hins ves.ar er nú tekið að kanna skoðanir vorar í smáum stíl — og einnig hagræða þeim. Til að ljúga að nútímamönnum, svo að sennilega líti út, þarf í fyrsta lagi álit sérfræðinga, í öðru lagi hagskýrslur.“ „Það er ein af dásemdum lýðræðisins að enn sem komið er hafa ekki aðeins sérfræðingár tilverurétt, heldur einnig samfræðingar, þ. e. a. s. menn, sem hafa almennt mannvit, heilbrigða skynsemi og jafnvel dómgreind, sem þeir nota stundum, þegar engir sérfræðing- ar eru nálægir og kosningar ekki fram undan. Þessi hópnr manna

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.