Glóðafeykir - 01.04.1969, Qupperneq 20
20
GLÓÐAFEYKIR
Þetta sögðu þeir —
Jóhann Hannesson prófessor:
„Nútímamenning er óhugsandi án sérfræðinga og sennilega öll
hámenning. Smávægilegustu sjúkdómar eru athugaðir af sérfróðum
mönnum, svo hálærðum að þeir vita allt um blóð og þvag, en lítið
um sjúklinga í heilu lagi. Nú er vitað og með þakklæti viðurkennt
að sérfræðingar í lœknastétt bjarga fjölda mannslífa, enda hvílir sið-
gæði stéttarinnar og mannúð á aldagömlum arfi frá ágætismönnum.
En svo er aðeins um brot af sérfræðingum nútímans. Vér megum
ekki skipta um frá vinstri til hægri umferðar nema með aðstoð inn-
lendra og erlendra sérfræðinga, löngu á undan og eftir breyting-
unni, og er þó breytingin smávægileg, nánast hégómi í samanburði
við mikilvæg þjóðmál. Vörur verða ekki auglýstar svo vel sé, né
börn vel alin upp, né hús byggð án afskipta sérfræðinga. . . .
Kóngar gátu stundum sett sig í sæti sérfræðinga, enda sagði einn
þeirra berum orðum: „Vér einir vitum .. . hvað ríkinu má helzt til
heilla verða.“ Enginn nútíma valdhafi veit svo rnikið, heldur hafa
menn hópa af sérfræðingum til að rannsaka það sem ríkinu er til
bölvunar eða blessunar, og veitir sízt af, eftir tilkomu tækninnar.
Sérfræðingar stofna til vandræða, og aðrir sérfræðingar greiða úr
vandræðum — báðir aðilar af sérfræðilegri kunnáttu. Að þjóð vorri
steðjaði árið 1967 aflabrestur, verðfall á útflutningsvörum, innlent
sjónvarp, kal í túnum, gengislækkun, yfirvofandi umferðarbreyting,
ósigrar í knattspyrnu, sterkt benzín og við lá að kæmi sterkur bjór
— og hvarvetna koma sérfræðingar við sögu, ýmist til að greiða úr
vandræðum eða ala á þeim. Margt hjakkar reyndar í sama fari og
virðist hvorki fara aftur né fram, svo sem uppeldismálum og skóla-
bókaoerð. Hins ves.ar er nú tekið að kanna skoðanir vorar í smáum
stíl — og einnig hagræða þeim. Til að ljúga að nútímamönnum, svo
að sennilega líti út, þarf í fyrsta lagi álit sérfræðinga, í öðru lagi
hagskýrslur.“
„Það er ein af dásemdum lýðræðisins að enn sem komið er hafa
ekki aðeins sérfræðingár tilverurétt, heldur einnig samfræðingar,
þ. e. a. s. menn, sem hafa almennt mannvit, heilbrigða skynsemi og
jafnvel dómgreind, sem þeir nota stundum, þegar engir sérfræðing-
ar eru nálægir og kosningar ekki fram undan. Þessi hópnr manna