Glóðafeykir - 01.04.1969, Page 24

Glóðafeykir - 01.04.1969, Page 24
24 GLOÐAFEYKIR Vísnaþáttur Jóhann Magnusson frá Mælifellsá þarf ekki að kynna fyrir Skag- firðingum, svo alþekktur maður, sem hann er í þessu héraði og víðar. Það er og alkunna, að Jóhann er hagyrðingur ágætur, og hafa vísur hans víða flogið. Aldrei hefur hann hirt um að halda til haga kveðskap sínum; er það illa farið. Hann á örfá kvæði og stökur í Skagfirzkum ljóðum fAkureyri 1957). Jóhann Magnússon er fæddur 2. dag marzmán. 1892, sonur Magn- úsar bónda í Gilhaga á Fremri byggð, Jónssonar, og konu hans Helgu Indriðadóttur ljósmóður. Einn bræðra Jóhanns var Þor- steinn, listagóður hagyrðingur, faðir Indriða ritstjóra og skálds. Þor- steinn lézt 1961. Kona Jóhanns er Lovísa Sveinsdóttir bónda á Mælifellsá og síðar kaupmanns, Gunnarssonar, og konu lians Margrétar Árnadóttur. Þau bjuggu á Mælifellsá 1921—1958, en hafa nú síðustu árin verið búsett í Reykjavík. Haust Tíminn kallar, lækka ljós, lífs er fallvalt gengi; hefur fjalla fögur rós föl að hallast vengi. Vetur. Freðin öll er hamrahöll, héluvöllinn stjörnur lýsa, hæstu fjöllin földuð mjöll, fellur gjöll á milli ísa. Það voraði seint. Vék um síðir vetrartíð, vorsól þíðir svörðinn kalinn, bráðum skrýðist blómum hlíð, blærinn líður hægt um dalinn.

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.