Glóðafeykir - 01.04.1969, Síða 24
24
GLOÐAFEYKIR
Vísnaþáttur
Jóhann Magnusson frá Mælifellsá þarf ekki að kynna fyrir Skag-
firðingum, svo alþekktur maður, sem hann er í þessu héraði og
víðar. Það er og alkunna, að Jóhann er hagyrðingur ágætur, og hafa
vísur hans víða flogið. Aldrei hefur hann hirt um að halda til haga
kveðskap sínum; er það illa farið. Hann á örfá kvæði og stökur í
Skagfirzkum ljóðum fAkureyri 1957).
Jóhann Magnússon er fæddur 2. dag marzmán. 1892, sonur Magn-
úsar bónda í Gilhaga á Fremri byggð, Jónssonar, og konu hans
Helgu Indriðadóttur ljósmóður. Einn bræðra Jóhanns var Þor-
steinn, listagóður hagyrðingur, faðir Indriða ritstjóra og skálds. Þor-
steinn lézt 1961.
Kona Jóhanns er Lovísa Sveinsdóttir bónda á Mælifellsá og síðar
kaupmanns, Gunnarssonar, og konu lians Margrétar Árnadóttur.
Þau bjuggu á Mælifellsá 1921—1958, en hafa nú síðustu árin verið
búsett í Reykjavík.
Haust
Tíminn kallar, lækka ljós,
lífs er fallvalt gengi;
hefur fjalla fögur rós
föl að hallast vengi.
Vetur.
Freðin öll er hamrahöll,
héluvöllinn stjörnur lýsa,
hæstu fjöllin földuð mjöll,
fellur gjöll á milli ísa.
Það voraði seint.
Vék um síðir vetrartíð,
vorsól þíðir svörðinn kalinn,
bráðum skrýðist blómum hlíð,
blærinn líður hægt um dalinn.