Glóðafeykir - 01.04.1969, Page 30

Glóðafeykir - 01.04.1969, Page 30
30 GLÖÐAFEYKIR íslenzku veðráttu, svo og gagnvart beit og troðningi, hljótum að dæma það úr leik að mestu. Þá bið ég heldur um túnvingul, skrið- língresi, snarrót og háliðagras. Þessir fjórir stofnar eru þolnir, gefa gott fóður snemmslegnir, mynda sameiginlega gott gróðurfar, eru fljótir að jafna sig eftir kalárin í flestum jarðvegi, þar sem heil- grös vaxa á annað borð. Þannig er mín reynsla. Fallegar og afurðamiklar kýr sá maður þarna, vel alda kálfa og stæðileg naut. Kýrnar mjólkaðar með nýju rörmjaltakerfi frá SIS; hreinleg og falleg vinnubrögð, enda mjaltamenn þjálfaðir og kunnu vel til verka sinna. Mikið var þarna af fallegum og góðum hestum: sýndu hestamenn kosti þeirra. Nokkrar kindur voru þarna sýndar, vel á sig komnar. En ekki fannst mér sérlega mikið til þeirra korna, borið saman við fallegt fé á Norðurlandi, t. d. í Þingeyjarsýslum, svo og í Strandasýslu, sérstaklega þó í Bitrunni; þar hef ég séð fall- egast sauðfé — á Þórustöðum, Snartartungu og nágrenni. Þar finnst mér muni vera einhverjir duldir kostir fyrir sauðféð, sem eru því hollir; þarna er um að ræða eitthvað rneira en venjulega, ágæta fjár- mennsku. Flestar skepnur á sýningunni voru í tveimur stórum skemmum i bogastíl. Voru skemmur þessar af nýrri gerð að því leyti, að í þeim eru engir bogar eða langbönd. Styrkleiki þeirra fæst út úr forminu á sjálfri klæðningunni, sem er öll skrúfuð sarnan, hver plata um 105 sm á breidd, á steyptum undirstöðum, festingar allar mjög hag- lega gerðar. Þetta eru án efa valin hús fyrir stórgeymslur, hey og vélar; aðeins fannst mér þetta mundi verða of dýrt, yfir 6000 kr. hver lengdarmetri. Það hlýtur að vera hægt að byggja á ódýrari hátt úr venjulegri steinsteypu og þakefni. Mikill var hlutur tænkinnar á þessari sýningu. Vélasalar margir og stórir í sniðum. Mest fór fyrir SIS, Dráttarvélum h.f., Glóbusi h.f., Hamri h.f. og Heklu h.f.. Margir aðrir sýndu álitleg tæki og nauð- synleg nútímanum. Mikill var áhuginn hjá sölumönnunum að selja; var mér sagt að allar vélar og tæki, sem sýnd voru, væru seld, og mikið pantað að auki. Þegar ég varð var hins mikla áhuga sölumann- anna á að selja, hafði ég orð á því við einhverja þeirra, að þeir ættu að reyna sig á að selja eitthvað að landbúnaðarframleiðslunni, svo sem 2500 tonn af dilkakjöti, fyrir sem næst framleiðslukostnaðar- verð, þeir fengju að líkindum 2—3 milljónir í sölulaun. Þegar ég nefndi milljónir, fóru þeir að leggja við eyrun. Jú, það mætti athuga þetta. — Það eru vissulega fleiri en bændurnir, sem hafa sitt fyrir að stússa eitt og annað kringum landbúnaðinn.

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.