Glóðafeykir - 01.04.1969, Blaðsíða 31
GLÓÐAFEYKIR
31
Sýnt var líkan af bújörð með tilheyrandi byggingum og bústofni,
girðingum, skurðum, vegum, túni og haga, þar sem fénaðurinn
dreifði sér. Öllu var þessu snoturlega fyrir komið og vel frá öllu
senffið. Á veemum var s;lö2;g skrá með tölulegum fróðleik um búið.
Stofnkostnaður var talinn rösklega 3,8 millj. kr. Bústærð sem næst
14 kýr, 4 kvígur og kálfar til viðhalds, 236 kindur. Framleiðslutekj-
ur kr. 589.826.00. Framleiðslukostnaður kr. 445.777.00. Rekstrar-
afgangur, vextir af eigin fé og fjölskyldulaun kr. 144.049.00. Það er
sú fjárhæð, sem fjölskyldan hefur til að lifa af. Þetta eru athyglis-
verðar tölur og fróðlegar fyrir fólk, sem hefur hug á að reisa bú.
Stofnkostnaðurinn, 3,8 milljónir, jörð með húsum og bústofn, er
sízt of hár. Framleiðslutekjurnar, kr. 589.826.00, kunna að geta stað-
izt í þolanlegu árferði. En ekki má mikið út af bera um tíðarfar
og heilsu búfjárins, ef svo vel á að fara. Og sjálfsagt er gengið út
frá réttlátum markaði, a. m. k. á yfirborðinu.
Framleiðslukostnaður er, sem áður segir, áætlaður kr. 445.777.00,
og greinist í 28 liði, sem hér skulu teknir upp til fróðleiks:
1. Aburður ..................................... kr. 77.379.00
2. Kjarnfóður .................................... — 122.906.00
3. Kaupgreiðslur ................................. — 48.433.00
4. Varahlutir og vinnulaun í samb. við þá........ — 12.227.00
5. Gasolía og benzín.............................. — 3.370.00
6. Smurolía ...................................... — 1.087.00
7. Aðrar rekstrarvörur............................ — 11.139.00
8. Aðkeypt þjónusta............................... — 3.388.00
9. Rafmagn við búið .............................. — 2.783.00
10. Tryggingar véla ................................ — 4.536.00
11. Aðrar tryggingar ............................... — 15.497.00
12. Dýralæknar og meðul............................. — 7.447.00
13. Mjólkurflutningar ............................. —• 15.179.00
14. Aðrir flutningar ............................... — 5.416.00
15. Sæðingargjöld .................................. — 1.713.00
16. Slátrun og sjóðagjöld .......................... — 2.453.00
17. Fjallskil ...................................... - 2.301.00
18. Sáðvörur ....................................... — 2.967.00
19. Póstur og sími ................................. — 1.752.00
20. Félagsgjöld .................................... — 1.309.00
21. Opinber gjöld .................................. — 3.710.00
22. Viðhald skurða.................................. — 3.687.00