Glóðafeykir - 01.04.1969, Qupperneq 31

Glóðafeykir - 01.04.1969, Qupperneq 31
GLÓÐAFEYKIR 31 Sýnt var líkan af bújörð með tilheyrandi byggingum og bústofni, girðingum, skurðum, vegum, túni og haga, þar sem fénaðurinn dreifði sér. Öllu var þessu snoturlega fyrir komið og vel frá öllu senffið. Á veemum var s;lö2;g skrá með tölulegum fróðleik um búið. Stofnkostnaður var talinn rösklega 3,8 millj. kr. Bústærð sem næst 14 kýr, 4 kvígur og kálfar til viðhalds, 236 kindur. Framleiðslutekj- ur kr. 589.826.00. Framleiðslukostnaður kr. 445.777.00. Rekstrar- afgangur, vextir af eigin fé og fjölskyldulaun kr. 144.049.00. Það er sú fjárhæð, sem fjölskyldan hefur til að lifa af. Þetta eru athyglis- verðar tölur og fróðlegar fyrir fólk, sem hefur hug á að reisa bú. Stofnkostnaðurinn, 3,8 milljónir, jörð með húsum og bústofn, er sízt of hár. Framleiðslutekjurnar, kr. 589.826.00, kunna að geta stað- izt í þolanlegu árferði. En ekki má mikið út af bera um tíðarfar og heilsu búfjárins, ef svo vel á að fara. Og sjálfsagt er gengið út frá réttlátum markaði, a. m. k. á yfirborðinu. Framleiðslukostnaður er, sem áður segir, áætlaður kr. 445.777.00, og greinist í 28 liði, sem hér skulu teknir upp til fróðleiks: 1. Aburður ..................................... kr. 77.379.00 2. Kjarnfóður .................................... — 122.906.00 3. Kaupgreiðslur ................................. — 48.433.00 4. Varahlutir og vinnulaun í samb. við þá........ — 12.227.00 5. Gasolía og benzín.............................. — 3.370.00 6. Smurolía ...................................... — 1.087.00 7. Aðrar rekstrarvörur............................ — 11.139.00 8. Aðkeypt þjónusta............................... — 3.388.00 9. Rafmagn við búið .............................. — 2.783.00 10. Tryggingar véla ................................ — 4.536.00 11. Aðrar tryggingar ............................... — 15.497.00 12. Dýralæknar og meðul............................. — 7.447.00 13. Mjólkurflutningar ............................. —• 15.179.00 14. Aðrir flutningar ............................... — 5.416.00 15. Sæðingargjöld .................................. — 1.713.00 16. Slátrun og sjóðagjöld .......................... — 2.453.00 17. Fjallskil ...................................... - 2.301.00 18. Sáðvörur ....................................... — 2.967.00 19. Póstur og sími ................................. — 1.752.00 20. Félagsgjöld .................................... — 1.309.00 21. Opinber gjöld .................................. — 3.710.00 22. Viðhald skurða.................................. — 3.687.00

x

Glóðafeykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.