Glóðafeykir - 01.04.1969, Page 35
GLÓÐAFEYKIR
35
með þessu, að veturinn eftir, er Jón kemur á sýslufund eftir stór-
sigur í kosningunum, fagnar ritari honum með svofelldum orðum
— og er ekkert hálfverk á þeim fögnuði:
Heill sértu, hetjan snjöll,
hingað á sýsluþing!
Stálslegin syngur sál
sónötu til þín, Jón.
Lundey við lagarsund
leggi þér dún og egg!
Fiskur þinn fljúgi á disk!
Finnir þú romm og gin!
Það er líka auðséð að Jón hefur vel kunnað að meta þetta allt,
því nú yrkir hann til ritara:
Sit heill á sæmdarstól
sjálegur, glaður hress!
Þakka ég hlýju þér.
Hamingjudísin björt
umvefji örmum þig
ævilokanna til.
Ljúft veiti björg í bú:
Brennivín, viský, romm.
Sit þú í sessi fast
sýslumáls skriftir við,
hýrlegur, ötull, ör
innan um þjark og spark!
Þótt skjóma skerpist gnýr
skelfist þú ekki neitt,
grön lyftir, glottir við —
geisli frá augum skín.
Og enn kvað ritari til Jóns:
Bakka-kvæðakempan góða
komin hér of land og sjó.
Heilan þig í hópinn bjóða
Haraldur og Stefanó.