Glóðafeykir - 01.04.1969, Qupperneq 35

Glóðafeykir - 01.04.1969, Qupperneq 35
GLÓÐAFEYKIR 35 með þessu, að veturinn eftir, er Jón kemur á sýslufund eftir stór- sigur í kosningunum, fagnar ritari honum með svofelldum orðum — og er ekkert hálfverk á þeim fögnuði: Heill sértu, hetjan snjöll, hingað á sýsluþing! Stálslegin syngur sál sónötu til þín, Jón. Lundey við lagarsund leggi þér dún og egg! Fiskur þinn fljúgi á disk! Finnir þú romm og gin! Það er líka auðséð að Jón hefur vel kunnað að meta þetta allt, því nú yrkir hann til ritara: Sit heill á sæmdarstól sjálegur, glaður hress! Þakka ég hlýju þér. Hamingjudísin björt umvefji örmum þig ævilokanna til. Ljúft veiti björg í bú: Brennivín, viský, romm. Sit þú í sessi fast sýslumáls skriftir við, hýrlegur, ötull, ör innan um þjark og spark! Þótt skjóma skerpist gnýr skelfist þú ekki neitt, grön lyftir, glottir við — geisli frá augum skín. Og enn kvað ritari til Jóns: Bakka-kvæðakempan góða komin hér of land og sjó. Heilan þig í hópinn bjóða Haraldur og Stefanó.

x

Glóðafeykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.