Glóðafeykir - 01.04.1969, Side 38

Glóðafeykir - 01.04.1969, Side 38
38 GLÓÐAFEYKIR Hjá orðasennum voru þeir ekki beint að sneiða við ýmsa, er á „pro-mill“-gjaldið festu eigi trúna. Því lítum við um héraðið beina vegi og breiða — þótt bugðan þyki reyndar kröpp fyrir austan Vatnabrúna. Um fundarritaraembættið er ég orðastaður og alveg finnst mér grátlegt, að þurfa að viðurkenna, að aldrei hefur fengizt í það almennilegur maður eftir það að Guðmundur hætti að snerta á penna. Sæluvikuna alla var ekkert sem oss hryggði, öldur gleðivakans, þær lægja sízt né kyrra. I þjóðlífinu er hún orðin einstakt fyrirbrigði — eins og séra Kolbeins var að prédika í fyrra. Af bíóinu vilja þeir ekki margir missa. A málfundum er rifizt, svo hvín í næstu fjöllum. Við sáum bæði Eyvind og Höllu — og urðum hissa hvað hún var miklu „penari“ en uppi á Hveravöllum. Alltaf sé hér kynslóð með útsýn heiða og djarfa. Að auð og hvers kyns metorðum vaxi þessi staður. ,Alltaf sé oss ljúft fyrir okkar þjóð að starfa — en alltaf sé þó bezt að vera sýslunefndarmaður. Blessuð sértu að eilífu, signuð „sæluvika“, söng þínum og fögnuði mætti helzt ei linna. Meðan upp á bláloftið máninn er að stika vér minnumst þín hvað ljúfast og ævintýra þinna. (Aths.: „undanþága": undanþága frá vínveitingabanni. „pro- mille“-gjaldið: vegagjald. Guðmundur: Guðmundur Davíðsson á Hraunum, ritari sýslunefndar um langt skeið; tók Stefán Vagnsson við af honum. séra Kolbeins: séra Halldór Kolbeins).

x

Glóðafeykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.