Glóðafeykir - 01.04.1969, Side 42
42
GLÓÐAFEYKIR
þótt á ýmsu gengi og þiöngur væri hagur hans löngum. Sveinbjörn
naut aldrei neinnar menntunar. En hann var gæddur menningu
hjartans meiri en margur sá, er á skólabekk hefur setið drjúgan
hluta ævinnar.
Magm'is Gunnarsson, hreppstjóri og bóndi í Utanverðunesi í
Hegranesi, lézt þ. 10. júlí 1955. Fæddur var hann að Vík í Sæmund-
arhlíð 1. janúar 1887. Foreldrar: Gunnar bóndi í Vík og síðar í
Keflavík í HesTanesi um 52 ára skeið. Ól-
afsson, bónda á Ögmundarstöðum, Jóns-
sonar bónda þar, Magnússonar prests í
Glaumbæ, Maonússonar. og kona hans
Simirlauo Maonúsdóttir bónda í Utan-
o o o
verðunesi, Arnasonar bónda í Garði í
Hegranesi, Jónssonar, og konu hans Sig-
urbjargar Guðmundsdóttur.
Barn að aldri var Magnús tekinn í fóst-
ur af afa sínum og ömmu í Utanverðu-
nesi, er þar bjuggu hálfa öld og fimm ár-
unr betur, og þar átti hann heima alla ævi
síðan. Tók við búi af afa sínum 1914 og
O
bjó þar til dauðadags með Sigurbjörgu
systur sinni.
Magnús í Nesi var lágur maður en gildvaxinn; bjarthærður, vel
farinn í andliti, fullur að vöngum. Hann var góður bóndi á gamla
vísu, sérhyggjumaður nokkur, lítt hneigður til breytinga f brmaðar-
háttum, hélt fast við fornar venjur ýmsar og fainaðist vel. Hann
var prúður maður, glaður og hlýr við gesti sína, vinsæll maður og
traustur. Veitull var hann og greiðamaður mikill. Reyndi oft á
gestrisni hans og greiðasemi og raunar á sjálf þolrif heimilisins áður
en brú var gerð á Vesturós Héraðsvatna, og ferja varð rnenn og
hesta og fénað allan yfir Ósinn. \Tar þá eigi ótftt á haustdegi, ef
illviðri var og ólga í sjó og óferjandi, að menn urðu að bíða í Nesi
með fjárrekstra, stundum svo dægrum skipti, unz batnaði veður og
brim lægði. Og í Nesi var öllum tekið svo sem bezt mátti verða,
mönnum jafnt sem málleysingjum; kom þá fyiir að öll hús væru
fyllt af fénaði, jafnvel bæjarhúsin líka.
Magnús Gunnarsson sat í hreppsnefnd í 12 ár; hreppstjóri Rípur-
hrepps var hann frá 1942. Rækti hann þau störf sem önnur af trú-
mennsku og samvizkusemi.
Magnús Gunnarsson.