Glóðafeykir - 01.04.1969, Síða 42

Glóðafeykir - 01.04.1969, Síða 42
42 GLÓÐAFEYKIR þótt á ýmsu gengi og þiöngur væri hagur hans löngum. Sveinbjörn naut aldrei neinnar menntunar. En hann var gæddur menningu hjartans meiri en margur sá, er á skólabekk hefur setið drjúgan hluta ævinnar. Magm'is Gunnarsson, hreppstjóri og bóndi í Utanverðunesi í Hegranesi, lézt þ. 10. júlí 1955. Fæddur var hann að Vík í Sæmund- arhlíð 1. janúar 1887. Foreldrar: Gunnar bóndi í Vík og síðar í Keflavík í HesTanesi um 52 ára skeið. Ól- afsson, bónda á Ögmundarstöðum, Jóns- sonar bónda þar, Magnússonar prests í Glaumbæ, Maonússonar. og kona hans Simirlauo Maonúsdóttir bónda í Utan- o o o verðunesi, Arnasonar bónda í Garði í Hegranesi, Jónssonar, og konu hans Sig- urbjargar Guðmundsdóttur. Barn að aldri var Magnús tekinn í fóst- ur af afa sínum og ömmu í Utanverðu- nesi, er þar bjuggu hálfa öld og fimm ár- unr betur, og þar átti hann heima alla ævi síðan. Tók við búi af afa sínum 1914 og O bjó þar til dauðadags með Sigurbjörgu systur sinni. Magnús í Nesi var lágur maður en gildvaxinn; bjarthærður, vel farinn í andliti, fullur að vöngum. Hann var góður bóndi á gamla vísu, sérhyggjumaður nokkur, lítt hneigður til breytinga f brmaðar- háttum, hélt fast við fornar venjur ýmsar og fainaðist vel. Hann var prúður maður, glaður og hlýr við gesti sína, vinsæll maður og traustur. Veitull var hann og greiðamaður mikill. Reyndi oft á gestrisni hans og greiðasemi og raunar á sjálf þolrif heimilisins áður en brú var gerð á Vesturós Héraðsvatna, og ferja varð rnenn og hesta og fénað allan yfir Ósinn. \Tar þá eigi ótftt á haustdegi, ef illviðri var og ólga í sjó og óferjandi, að menn urðu að bíða í Nesi með fjárrekstra, stundum svo dægrum skipti, unz batnaði veður og brim lægði. Og í Nesi var öllum tekið svo sem bezt mátti verða, mönnum jafnt sem málleysingjum; kom þá fyiir að öll hús væru fyllt af fénaði, jafnvel bæjarhúsin líka. Magnús Gunnarsson sat í hreppsnefnd í 12 ár; hreppstjóri Rípur- hrepps var hann frá 1942. Rækti hann þau störf sem önnur af trú- mennsku og samvizkusemi. Magnús Gunnarsson.

x

Glóðafeykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.