Glóðafeykir - 01.04.1969, Side 43

Glóðafeykir - 01.04.1969, Side 43
GLÓÐAFEYKIR 43 Magnús dó ókvæntur og barnlaus. En í Nesi var sjaldan barnlaus bær. Og slíkur var aðbúnaður barnanna af hálfu húsbænda, að flest bundu þau varanlega tryggð við heimilið. Páll Stefánsson, verkam. á Sauðárkróki, lézt þ. 28. júlí 1955. Hann var fæddur á Bjarnastöðum í Blönduhlíð 14. ágúst 1890, sonur Stef- áns bónda þar og síðar á Halldórsstöðum á Langholti Bjarnasonar, bónda í Elivogum, Bjarnasonar, og konu hans Aðalbjargar Magnúsdóttur bónda í Leyningi í Eyjafirði, Torfmýri í Blöndu- hlíð o. v., Jónssonar, og konu hans Sigur- rósar Sigurðardóttur bónda í Æsustaða- gerði í Eyjafirði, Stefánssonar. Foreldrar Páls voru fátæk og áttu fjölda barna; komust 10 til fullorðinsára. Missti Páll föður sinn meðan hann enn var ung- ur og innan við fermingu (1902). Fór hann þá til Björns bónda Jónssonar á Stóru-Seylu og var hjá honum allmörg ár, síðan í vist á ýmsum stöðum og efnaðist nokkuð, enda ráðdeildarmaður í bezta lagi. Arið 1928 gekk Páll að eiga Guðrúnu Gunnarsdóttur frá Kefla- vík, alsystur Magnúsar í Utanverðunesi (sjá þátt hans hér á undan). Reistu þau þegar bú að Enni í Viðvíkursveit og bjuggu þar 1928— 1929, í Ásgeirsbrekku 1930—1931, en hurfu þá til Sauðárkróks, þar sem heimili þeirra stóð upp þaðan. Þrjú eru börn þeirra hjóna: Sigurlaug, húsfr. á Akureyri, Aðalfríður, húsfr. í Reykjavík og Stef- án, lögregluþjónn á Sauðárkróki. Páll Stefánsson var meðalmaður á velli og vel vaxinn, myndar- legur í sjón. Hann komst vel til manns sem þau systkini öll. Hann var greindur maður og mjög söngvinn sem ættmenn hans margir; má geta þess hér, að Stefán íslandi, hinn víðfrægi söngvari, er syst- ursonur hans. Páll var hóglátur maður og stilltur vel, prúður í hátt- um og barst lítt á. Hann var grandvar skapfestumaður, traustur og trygglundaður, vinsæll og vel látinn, drengur góður. Astvaldur Einarsson, verkam. á Sauðárkróki, lézt 23. ágúst 1955. Hann var fæddur á Vatnsleysu í Viðvíkursveit 7. ágúst 1889, sonur Einars Jónssonar, Kaprasíussonar, og konu hans Júlíönu Jóhanns- Páll Stefánsson.

x

Glóðafeykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.