Glóðafeykir - 01.04.1969, Side 46

Glóðafeykir - 01.04.1969, Side 46
46 GLÓÐAFEYKIR Sigtryggur Einarsson var hár maður og grannvaxinn; dökkhærð- ur, fölleitur og fagureygur. Hann var maður bráðgreindur, fróður og minnugur, skráði margháttaðan fróðleik um menn og ættir, sem illu heilli mun hafa olatazt að honum látnum. Hagmæltur var hann í betra lagi, en fór dult með. Sigtryggur var alvörumaður, hæglátur og hlédrægur, ákaflega yfirlætislaus, hæverskur og stillt- ur. Hann var hagur vel á hendur, smíðaði og batt bækur. Hann var áhugasamur um félagsleg málefni og einlægur samvinnu- maður. Sigtryggur var vammlaus maður í hvívetna og gæðadrengur. Eigi fór hann varhluta af biturri reynslu. Systkini hans flest urðu hvítadauða að bráð í broddi lífs, og hann varð bak að sjá börnum sín- um tveim. Og sjálfur átti hann löngum við heilsubrest að búa og heilsuþrot að lokum. Þó var hann andlega hress og glaður unz yfir lauk. Björgyin Helgason, lausamaður í Sólheimum í Blönduhlíð, varð bráðkvaddur þ. 25. okt. 1955. Hann var fæddur að Þrörn á Lang- holti 7. marz 1917, sonur Helga bónda þar og víðar, síðast á Mið- sitju í Blönduhlíð, Guðnasonar bónda á fshóli í Bárðardal, Þorgrímssonar. Móð- ir hans var María Guðmundsdóttir bónda á Hryggjum í Staðarfjöllum, síðar verka- manns á Sauðárkróki, Gíslasonar, og Hel»u Masnúsdóttur bónda á Breið í O O Tungusveit o. v., Gunnlaugssonar. Réðst María ráðskona til Helga eftir að konu hans, Sigurbjargar Jónsdóttur, missti við. Níu ára gamall fluttist Björgvin með foreldrum sínum að Miðsitju; átti síðan alla stund heima á þrem nágrannabæjum í Blönduhlíð, lausamaður oftast, er vax- inn var upp, og lengst í Sólheimum, eða síðustu 13 árin; stundaði þá oftast vega- vinnu á sumrin en fjárhirðingu á vetrum. Hann dó ókvæntur og barnlaus. Björguin Helgason. Sigtryggur Einarsson.

x

Glóðafeykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.