Glóðafeykir - 01.04.1969, Side 47
GLÓÐAFEYKIR
47
Björgvin Helgason var meðalmaðnr á vöxt, tiltakanlega hýr og
góðlegur á svip, enda hugnaðist hann hverjum manni vel. Af Björg-
vini stóð ekki stormur. Hann var hægur og hlédrægur, óhlutdeilinn
og umtalsgóður, trygglundaður og barngóður, svo að frá bar. í fá-
mennum hópi lék á als oddi, hafði unun af að deila þeli við
kunningja og vini, spyrja og segja frá. Björgvin var hestamaður
ítóður oar hesthneiaður með afbri°;ðum. Við hestinn var tengt líf
hans og yndi öðru fremur. Og eigi varð hann uppnæmur, þótt við
óstýriláta og baldna fola væri að fást. A hestbaki átti þessi góði
drengur sitt „ríki“ og sínar „álfur,“
Kristbjörg Jónsdóttir, fyrrum húsfreyja á Irafelli í Svartárdal,
lézt þ. 30. okt. 1955. Hún var fædd í Höfðahólum á Skagaströnd 24.
ágúst 1896. Foreldrar: Jón bóndi og húsasmiður í Höfðahólum o. v.
Jónatansson á Marðarnúpi í Vatnsdal,
Davíðssonar, og sambýliskona hans Björg
Jónasdóttir bónda á Grófargili í Lang-
holti, Sigfússonar, og konu hans Margrét-
ar Ólafsdóttur.
Kristbjörg óx upp í fátækt með foreldr-
um sínum og mörgum systkinum á ýms-
um stöðum í Vindhælishreppi hinum
forna. Föður sinn missti hún 1908;
drukknaði hann við Blönduós þá um
haustið, ásamt með þremur mönnum öðr-
um. Sundraðist þá heimilið. Laust fyrir
1920 fluttist Kristbjörg norður hingað að
Tunguhálsi í Tungusveit. Arið 1920 gekk Kristbjörg Jónsdóttir.
hún að eiga Stefán Sveinsson, albróður
Guðmundar í Bjarnastaðarhlíð fsjá Glóðaf. 1966, 5. h., bls. 31). Ári
síðar reistu þau bú að Giljum í Vesturdal og bjuggu þar 1 ár, þá að
Ólduhrygg í Svartárdal 3 ár, en 1925 færðu þau bú sitt að írafelli
og þar bjó Kristbjörg til dauðadags, síðustu árin allmörg ein síns
iiðs og lítt heil. Þau hjón slitu samvistum árið 1939. Synir þeirra
tru tveir: Reimar, bifreiðastj. í Reykjavík og Hjalti, forstjóri, einn-
ig í Reykjavík.
Kristbjörg á írafelli var, að sögn nákunnugs manns, myndarkona
og mikið í hana spunnið, vel gefin, skapföst og tryggur vinur vina
sinna.