Glóðafeykir - 01.04.1969, Page 47

Glóðafeykir - 01.04.1969, Page 47
GLÓÐAFEYKIR 47 Björgvin Helgason var meðalmaðnr á vöxt, tiltakanlega hýr og góðlegur á svip, enda hugnaðist hann hverjum manni vel. Af Björg- vini stóð ekki stormur. Hann var hægur og hlédrægur, óhlutdeilinn og umtalsgóður, trygglundaður og barngóður, svo að frá bar. í fá- mennum hópi lék á als oddi, hafði unun af að deila þeli við kunningja og vini, spyrja og segja frá. Björgvin var hestamaður ítóður oar hesthneiaður með afbri°;ðum. Við hestinn var tengt líf hans og yndi öðru fremur. Og eigi varð hann uppnæmur, þótt við óstýriláta og baldna fola væri að fást. A hestbaki átti þessi góði drengur sitt „ríki“ og sínar „álfur,“ Kristbjörg Jónsdóttir, fyrrum húsfreyja á Irafelli í Svartárdal, lézt þ. 30. okt. 1955. Hún var fædd í Höfðahólum á Skagaströnd 24. ágúst 1896. Foreldrar: Jón bóndi og húsasmiður í Höfðahólum o. v. Jónatansson á Marðarnúpi í Vatnsdal, Davíðssonar, og sambýliskona hans Björg Jónasdóttir bónda á Grófargili í Lang- holti, Sigfússonar, og konu hans Margrét- ar Ólafsdóttur. Kristbjörg óx upp í fátækt með foreldr- um sínum og mörgum systkinum á ýms- um stöðum í Vindhælishreppi hinum forna. Föður sinn missti hún 1908; drukknaði hann við Blönduós þá um haustið, ásamt með þremur mönnum öðr- um. Sundraðist þá heimilið. Laust fyrir 1920 fluttist Kristbjörg norður hingað að Tunguhálsi í Tungusveit. Arið 1920 gekk Kristbjörg Jónsdóttir. hún að eiga Stefán Sveinsson, albróður Guðmundar í Bjarnastaðarhlíð fsjá Glóðaf. 1966, 5. h., bls. 31). Ári síðar reistu þau bú að Giljum í Vesturdal og bjuggu þar 1 ár, þá að Ólduhrygg í Svartárdal 3 ár, en 1925 færðu þau bú sitt að írafelli og þar bjó Kristbjörg til dauðadags, síðustu árin allmörg ein síns iiðs og lítt heil. Þau hjón slitu samvistum árið 1939. Synir þeirra tru tveir: Reimar, bifreiðastj. í Reykjavík og Hjalti, forstjóri, einn- ig í Reykjavík. Kristbjörg á írafelli var, að sögn nákunnugs manns, myndarkona og mikið í hana spunnið, vel gefin, skapföst og tryggur vinur vina sinna.

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.