Glóðafeykir - 01.04.1969, Page 48

Glóðafeykir - 01.04.1969, Page 48
48 GLÓÐAFEYKIR Lovísa Albertsdóttir, bústýra á Páfastöðum á Langholti, lézt þ. 22. nóv. 1955. Hún var fædd að Páfastöðum 7. jan. 1895 og átti þar heima alla ævi. \Toru foreldrar hennar skörungshjónin Albert bóndi þar Kristjánsson og Guðrún Ólafs- dóttir (sjá Glóðaf. 1967, 7. h., bls. 33). Arið 1922 giftist Lovísa Sigurði Skag- field óperusöngvara. Faðir hans var Sig- urður bóndi og oddviti á Litlu-Seylu (nú Brautarholt) á Langholti Jónsson, og var hann því hálfbróðir — samfeðra — Jóhanns á Löngumýri (sjá Glóðaf. 8. h. 1968, bls. 42). Móðir Sigurðar Skagfields og kona Sigurðar á Litlu-Seylu var Jóhanna Steins- dóttir bónda og hreppstjóra í Stóru-Gröf á Langholti, Vigfússonar bónda á Grund- arlandi í Deildardal, Vigfússonar, og konu hans Helgu Pétursdóttur bónda á Vatns- leysu í Viðvíkursveit, Bjarnasonar. Sigurður Skagfield var farandmaður, svo sem löngum verður hlutskipti listamanna í hans grein, og langdvölum erlendis. Lovísa undi sér hins vegar bezt heima þar á óðalinu og mun trautt hafa til þess getað hugsað, að hverfa þaðan á braut. Varð því úr að þau skildu, hjónin. Börn þeirra eru tvö: Hilmar, bús. í Ameríku og Fdda, húsfr. á Páfastöðum. Lovísa Albertsdóttir var há og grannvaxin, fríðleikskona og glæsi- leg, hvar sem á var litið; vel gefin og prýðilega að sér ger, listelsk, hæglát og fáskiptin. Hún stundaði nám í kvennaskólanum á Blöndu- ósi veturinn 1912—1913, síðan garðyrkjunám á Akureyri og kom upp skrúðgarði á Páfastöðum, einum hinum fyrsta á þeim slóðum. Við lát móður sinnar 1931 tók hún við húsmóðurstörfum á Páfa- stöðum. Stýrði hún þar öllu innan stokks af stakri prýði, svo að heimilið setti í engu ofan. Faðir hennar var farinn að heilsu all- mörg síðustu árin, er hann lifði. Hlaut því hennar hlutur um alla forsjá að verða þyngri og stærri en ella, svo að miklu munaði. En eigi bognaði hún að heldur, þótt heilsutæp væri löngum, og ann- aðist auk þess föður sinn fjörgamlan og farlama af frábærri ástúð og umhyggju. Lovísa var mæt kona og merk. Lovisa J. Albertsdóttir

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.