Glóðafeykir - 01.04.1969, Síða 48
48
GLÓÐAFEYKIR
Lovísa Albertsdóttir, bústýra á Páfastöðum á Langholti, lézt þ.
22. nóv. 1955. Hún var fædd að Páfastöðum 7. jan. 1895 og átti
þar heima alla ævi. \Toru foreldrar hennar skörungshjónin Albert
bóndi þar Kristjánsson og Guðrún Ólafs-
dóttir (sjá Glóðaf. 1967, 7. h., bls. 33).
Arið 1922 giftist Lovísa Sigurði Skag-
field óperusöngvara. Faðir hans var Sig-
urður bóndi og oddviti á Litlu-Seylu (nú
Brautarholt) á Langholti Jónsson, og var
hann því hálfbróðir — samfeðra — Jóhanns
á Löngumýri (sjá Glóðaf. 8. h. 1968, bls.
42). Móðir Sigurðar Skagfields og kona
Sigurðar á Litlu-Seylu var Jóhanna Steins-
dóttir bónda og hreppstjóra í Stóru-Gröf
á Langholti, Vigfússonar bónda á Grund-
arlandi í Deildardal, Vigfússonar, og konu
hans Helgu Pétursdóttur bónda á Vatns-
leysu í Viðvíkursveit, Bjarnasonar.
Sigurður Skagfield var farandmaður, svo sem löngum verður
hlutskipti listamanna í hans grein, og langdvölum erlendis. Lovísa
undi sér hins vegar bezt heima þar á óðalinu og mun trautt hafa til
þess getað hugsað, að hverfa þaðan á braut. Varð því úr að þau
skildu, hjónin. Börn þeirra eru tvö: Hilmar, bús. í Ameríku og
Fdda, húsfr. á Páfastöðum.
Lovísa Albertsdóttir var há og grannvaxin, fríðleikskona og glæsi-
leg, hvar sem á var litið; vel gefin og prýðilega að sér ger, listelsk,
hæglát og fáskiptin. Hún stundaði nám í kvennaskólanum á Blöndu-
ósi veturinn 1912—1913, síðan garðyrkjunám á Akureyri og kom
upp skrúðgarði á Páfastöðum, einum hinum fyrsta á þeim slóðum.
Við lát móður sinnar 1931 tók hún við húsmóðurstörfum á Páfa-
stöðum. Stýrði hún þar öllu innan stokks af stakri prýði, svo að
heimilið setti í engu ofan. Faðir hennar var farinn að heilsu all-
mörg síðustu árin, er hann lifði. Hlaut því hennar hlutur um alla
forsjá að verða þyngri og stærri en ella, svo að miklu munaði. En
eigi bognaði hún að heldur, þótt heilsutæp væri löngum, og ann-
aðist auk þess föður sinn fjörgamlan og farlama af frábærri ástúð
og umhyggju. Lovísa var mæt kona og merk.
Lovisa J. Albertsdóttir