Glóðafeykir - 01.04.1969, Side 51

Glóðafeykir - 01.04.1969, Side 51
GLÓÐAFEYKIR 51 og herðar, stórskorinn nokkuð ásýndum, rauðbirkinn á hár og rjóð- ur á vanga. Hann var þrekmenni mikið, rammtraustur manndóms- maður, hreinskilinn og hreinskiptinn, frábærlega gestrisinn, ræðinn og mjög áhugasamur um þjóðmál jafnt sem málefni sveitar sinnar. Honum voru falin ýmis trúnaðarstörf, sem hann rækti öll af dugn- aði og trúmennsku. M. a. var hann um fjölda ára formaður Spari- sjóðs Hólahrepps og átti lengi sæti í hreppsnefnd. Merkur maður og nákunnugur Sigmrjóni lét svo um mælt, að með honum væri á val fallinn „gildur höldur og góður drengur.“ Mun það eigi ofmælt. Guðmundur Björnsson, verkam. á Sauðárkróki, lézt 8. apríl 1956. Fæddur var hann að Veðramóti í Gönguskörðum 20. júlí 1894. For- eldrar: Björn hreppstjóri og dbrm. á Veðramóti Jónsson, hreppstj. og bónda að Háagerði á Skagaströnd, Jónssonar, og kona hans Þorbjörg Stefáns- dóttir bónda á Heiði í Gönguskörðum, Stefánssonar bónda í Keflavík í Hegra- nesi, Sigurðssonar, og konu hans Guðrún- ar Sigurðardóttur hreppstj. og skálds á Heiði. Guðmundur ólst upp með foreldrum sínum á Veðramóti til fullorðinsára. Var hann næstyngstur hinna kunnu Veðra- mótasystkina, en þau voru 10. Hann flutti til Sauðárkróks 1918, reisti bú í Tungu (Skollatungu) í Gönguskörðum 1922 og bjó þar snotru búi með konu sinni til 1931, er þau hurfu til Sauðárkróks og áttu þar heima alla stund, unz Guðmundur fór alfarinn til Reykja- víkur nokkrum mánuðum áður en hann lézt. Guðmundur var tvíkvæntur. Árið 1918 gekk hann að eiga Þóreyju Ólafsdóttur sjómanns á Sauðárkróki Guðmundssonar, síðast bónda á Ingveldarstöðum á Reykjaströnd, Gunnarssonar hreppstj. á Skíða- stöðum á Laxárdal ytra, Gunnarssonar, og konu hans Sigurlaugar Gísladóttur hreppstj. á Herjólfsstöðum á Laxárdal, jónssonar, og konu hans Ragnheiðar Eggertsdóttur bónda á Skefilsstöðum, Þor- valdssonar. Guðmundur missti Þóreyju konu sína árið 1944. Börn þeirra eru 3: Sigurlaug, húsfr. í Reykjavík, Þorbjörg, húsfr. í Reykjavík og Ólafur, lyfjafræðingur í Reykjavík. Guðm. Biörnsson

x

Glóðafeykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.