Glóðafeykir - 01.04.1969, Page 51
GLÓÐAFEYKIR
51
og herðar, stórskorinn nokkuð ásýndum, rauðbirkinn á hár og rjóð-
ur á vanga. Hann var þrekmenni mikið, rammtraustur manndóms-
maður, hreinskilinn og hreinskiptinn, frábærlega gestrisinn, ræðinn
og mjög áhugasamur um þjóðmál jafnt sem málefni sveitar sinnar.
Honum voru falin ýmis trúnaðarstörf, sem hann rækti öll af dugn-
aði og trúmennsku. M. a. var hann um fjölda ára formaður Spari-
sjóðs Hólahrepps og átti lengi sæti í hreppsnefnd. Merkur maður
og nákunnugur Sigmrjóni lét svo um mælt, að með honum væri
á val fallinn „gildur höldur og góður drengur.“ Mun það eigi
ofmælt.
Guðmundur Björnsson, verkam. á Sauðárkróki, lézt 8. apríl 1956.
Fæddur var hann að Veðramóti í Gönguskörðum 20. júlí 1894. For-
eldrar: Björn hreppstjóri og dbrm. á Veðramóti Jónsson, hreppstj.
og bónda að Háagerði á Skagaströnd,
Jónssonar, og kona hans Þorbjörg Stefáns-
dóttir bónda á Heiði í Gönguskörðum,
Stefánssonar bónda í Keflavík í Hegra-
nesi, Sigurðssonar, og konu hans Guðrún-
ar Sigurðardóttur hreppstj. og skálds á
Heiði.
Guðmundur ólst upp með foreldrum
sínum á Veðramóti til fullorðinsára. Var
hann næstyngstur hinna kunnu Veðra-
mótasystkina, en þau voru 10. Hann flutti
til Sauðárkróks 1918, reisti bú í Tungu
(Skollatungu) í Gönguskörðum 1922 og
bjó þar snotru búi með konu sinni til
1931, er þau hurfu til Sauðárkróks og
áttu þar heima alla stund, unz Guðmundur fór alfarinn til Reykja-
víkur nokkrum mánuðum áður en hann lézt.
Guðmundur var tvíkvæntur. Árið 1918 gekk hann að eiga Þóreyju
Ólafsdóttur sjómanns á Sauðárkróki Guðmundssonar, síðast bónda
á Ingveldarstöðum á Reykjaströnd, Gunnarssonar hreppstj. á Skíða-
stöðum á Laxárdal ytra, Gunnarssonar, og konu hans Sigurlaugar
Gísladóttur hreppstj. á Herjólfsstöðum á Laxárdal, jónssonar, og
konu hans Ragnheiðar Eggertsdóttur bónda á Skefilsstöðum, Þor-
valdssonar. Guðmundur missti Þóreyju konu sína árið 1944. Börn
þeirra eru 3: Sigurlaug, húsfr. í Reykjavík, Þorbjörg, húsfr. í
Reykjavík og Ólafur, lyfjafræðingur í Reykjavík.
Guðm. Biörnsson