Glóðafeykir - 01.04.1969, Síða 52
52
GLÓÐAFEYKIR
Seinni kona Guðmundar var Lára Þorsteinsdóttir, ættuð úr
Reykjavík. Þau áttu ekki börn.
Guðmundur Björnsson var góður meðalmaður á vöxt, skarpleit-
ur, vel farinn í andliti og myndarmaður í sjón. Honum var margt
vel gefið, hafði m. a. ótvíræða leikhæfileika, enda starfaði hann
nokkuð með Leikfélagi Sauðárkróks. Hann var gæddur merkilegri
skyggnigáfu, en lét sjálfur lítt af. Hann var gleðimaður að eðlis-
fari; greiðvikinn, hispurslaus og ekki alltaf fyrirlátssamur. Dýiavin-
ur var hann mikill, hafði yndi af skepnum og lét sér annt um líðan
þeirra.
Jón Þorsteinsson, verkamaður á Sauðárkróki, lézt þ. 1. maí 1956.
Hann var fæddur í Litlu-Gröf á Langholti 19. apríl 1874, sonur
Þorsteins bónda þar og hreppstj. Bjarnasonar, bónda á Sjávarborg,
Jónssonar, og miðkonu hans, Elínar Þor-
láksdóttur.
Þriggja ára gamall missti Jón móður
sína. Ólst hann upp með föður sínum og
stjúpu, Lilju Gísladóttur, til fermingar-
aldurs; var því næst 2 ár hjá Jóhanni
bróður sínum, er tók við biii í Litlu-Gröf
1888, fór þá að Stóru-Gröf til Sigurjóns
bónda Markússonar og var þar hjá honum
6 ár, fluttist með honum að Eyhildarholti
1896 og var þar unz liann reisti bii nreð
konu sinni að Rein í Hegranesi 1902.
Árið 1905 fluttu þau búferlum að Fagra-
nesi á Reykjaströnd og bjuggu þar til
1910, er þau brugðu biii og hurfu til Sauð-
árkróks, þar senr heinrili þeirra stóð upp frá því.
Árið 1897 kvæntist Jón Jóhönnu Guðrúnu Gísladóttur hreppstj.
í Hvamnri á Laxárdal ytra, síðast bónda á Herjólfsstöðum, Jónsson-
ar bónda í Kýrholti, Pálssonar, og konu hans Ragnlreiðar Eggerts-
dóttur bónda á Skefilsstöðunr á Skaga, Þorvaldssonar bónda þar,
Gunnarssonar, og fyrri konu hans Ragnheiðar Jónsdóttur. Jón missti
konu sína 1948. Þau eignuðust 6 börn og konrust 3 á fullorðins-
aldur: Ragnar, áður söngstjóri á Sauðárkróki og í Vestmannaeyium.
nú verkam. í Reykjavík, Sigrún, húsfr. á Sauðárkróki, áður sýslu-
skrifari og sjúkrasanrlagsstj. um langt skeið, Haraldur, trésmíða-
meistari á Akureyri.
Jón Þorsteinsson.