Glóðafeykir - 01.04.1969, Qupperneq 52

Glóðafeykir - 01.04.1969, Qupperneq 52
52 GLÓÐAFEYKIR Seinni kona Guðmundar var Lára Þorsteinsdóttir, ættuð úr Reykjavík. Þau áttu ekki börn. Guðmundur Björnsson var góður meðalmaður á vöxt, skarpleit- ur, vel farinn í andliti og myndarmaður í sjón. Honum var margt vel gefið, hafði m. a. ótvíræða leikhæfileika, enda starfaði hann nokkuð með Leikfélagi Sauðárkróks. Hann var gæddur merkilegri skyggnigáfu, en lét sjálfur lítt af. Hann var gleðimaður að eðlis- fari; greiðvikinn, hispurslaus og ekki alltaf fyrirlátssamur. Dýiavin- ur var hann mikill, hafði yndi af skepnum og lét sér annt um líðan þeirra. Jón Þorsteinsson, verkamaður á Sauðárkróki, lézt þ. 1. maí 1956. Hann var fæddur í Litlu-Gröf á Langholti 19. apríl 1874, sonur Þorsteins bónda þar og hreppstj. Bjarnasonar, bónda á Sjávarborg, Jónssonar, og miðkonu hans, Elínar Þor- láksdóttur. Þriggja ára gamall missti Jón móður sína. Ólst hann upp með föður sínum og stjúpu, Lilju Gísladóttur, til fermingar- aldurs; var því næst 2 ár hjá Jóhanni bróður sínum, er tók við biii í Litlu-Gröf 1888, fór þá að Stóru-Gröf til Sigurjóns bónda Markússonar og var þar hjá honum 6 ár, fluttist með honum að Eyhildarholti 1896 og var þar unz liann reisti bii nreð konu sinni að Rein í Hegranesi 1902. Árið 1905 fluttu þau búferlum að Fagra- nesi á Reykjaströnd og bjuggu þar til 1910, er þau brugðu biii og hurfu til Sauð- árkróks, þar senr heinrili þeirra stóð upp frá því. Árið 1897 kvæntist Jón Jóhönnu Guðrúnu Gísladóttur hreppstj. í Hvamnri á Laxárdal ytra, síðast bónda á Herjólfsstöðum, Jónsson- ar bónda í Kýrholti, Pálssonar, og konu hans Ragnlreiðar Eggerts- dóttur bónda á Skefilsstöðunr á Skaga, Þorvaldssonar bónda þar, Gunnarssonar, og fyrri konu hans Ragnheiðar Jónsdóttur. Jón missti konu sína 1948. Þau eignuðust 6 börn og konrust 3 á fullorðins- aldur: Ragnar, áður söngstjóri á Sauðárkróki og í Vestmannaeyium. nú verkam. í Reykjavík, Sigrún, húsfr. á Sauðárkróki, áður sýslu- skrifari og sjúkrasanrlagsstj. um langt skeið, Haraldur, trésmíða- meistari á Akureyri. Jón Þorsteinsson.

x

Glóðafeykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.