Glóðafeykir - 01.04.1969, Page 54

Glóðafeykir - 01.04.1969, Page 54
54 GLÓÐAFEYKIR Björn Arnason, bóndi í Krithólsgerði á Neðri-byggð, andaðist þ. 21. október 1956. Hann var fæddur á Víðimýri 6. jan. 1893, sonur Arna bónda þar og í Hlíðarseli á Skörðum, Jónssonar skálds á Víði- mýri, Árnasonar, og konu hans Ingbjarg- ar Björnsdóttur. Á fyrsta aldursári fluttist hann með foreldrum sínum að Hlíðarseli (í Bólstaðarhlíðarhreppi, löngu kornið í eyði). Þar missti hann föður sinn tveggja ára gamall. Ári síðar fór hann með móður sinni að Krithóli, en hún giftist um þær mundir síðara manni sínum, Jóni Eyjólfs- syni, bónda þar. Hjá þeim ólst Björn upp ásamt allmörgum systkinum. Jón Eyjólfsson lézt 1908, en 1914 missti Björn móður sína. Það hið sama ár gekk hann að eiga Jóhönnu Guðlaugu Sæm- undsdóttur bónda á Krithóli o. v., síðast í Sólheimagerði í Blönduhlíð, Jóhanns- sonar bónda í Héraðsdal, og fyrstu konu hans Ingibjargar Guð- mundsdóttur Guðmundssonar í Áshildarholti, Jónssonar sterka á Hryggjum. Þau Björn og Jóhanna fóru þegar að búa á Krithóli við lát móð- ur hans og bjuggu þar í sambýli til 1929, fluttust þá að Hamarsgerði á Fremri-byggð og voru þar í húsmennsku 1 ár, þá aftur að Krithóli. Hóf Björn að reisa bæjarhús í Krithólsgerði, gömlu eyðibýli í landi Krithóls, flutti þangað með konu sinni 1931 og bjó þar æ síðan. Var þar löngum kallað „á Gerðinu." Börn þeirra lijóna eru 2: Ingibjörg, húsfr. á Sauðárkróki og Árni, býr með móður sinni í Krithólsgerði. Björn Árnason var frekar lágur maður vexti en þrekinn vel, and- litsfríður og sviphreinn. Hann var fátækur jafnan og vanheill um langt skeið, en hvorugt lét liann fyrir standa einstakri glaðværð og góðfýsi. Hann var vel greindur, skemmtinn í orðræðu, kunni vel að láta „vínið andann hressa“ á góðri stund, hagmæltur í betra lagi en fór dult með, söngmaður góður og hestamaður. Hann var vandaður maður o? oóður drengur. o o o Björn Arnason.

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.