Glóðafeykir - 01.04.1969, Qupperneq 54
54
GLÓÐAFEYKIR
Björn Arnason, bóndi í Krithólsgerði á Neðri-byggð, andaðist þ.
21. október 1956. Hann var fæddur á Víðimýri 6. jan. 1893, sonur
Arna bónda þar og í Hlíðarseli á Skörðum, Jónssonar skálds á Víði-
mýri, Árnasonar, og konu hans Ingbjarg-
ar Björnsdóttur. Á fyrsta aldursári fluttist
hann með foreldrum sínum að Hlíðarseli
(í Bólstaðarhlíðarhreppi, löngu kornið í
eyði). Þar missti hann föður sinn tveggja
ára gamall. Ári síðar fór hann með móður
sinni að Krithóli, en hún giftist um þær
mundir síðara manni sínum, Jóni Eyjólfs-
syni, bónda þar. Hjá þeim ólst Björn upp
ásamt allmörgum systkinum.
Jón Eyjólfsson lézt 1908, en 1914 missti
Björn móður sína. Það hið sama ár gekk
hann að eiga Jóhönnu Guðlaugu Sæm-
undsdóttur bónda á Krithóli o. v., síðast
í Sólheimagerði í Blönduhlíð, Jóhanns-
sonar bónda í Héraðsdal, og fyrstu konu hans Ingibjargar Guð-
mundsdóttur Guðmundssonar í Áshildarholti, Jónssonar sterka á
Hryggjum.
Þau Björn og Jóhanna fóru þegar að búa á Krithóli við lát móð-
ur hans og bjuggu þar í sambýli til 1929, fluttust þá að Hamarsgerði
á Fremri-byggð og voru þar í húsmennsku 1 ár, þá aftur að Krithóli.
Hóf Björn að reisa bæjarhús í Krithólsgerði, gömlu eyðibýli í landi
Krithóls, flutti þangað með konu sinni 1931 og bjó þar æ síðan.
Var þar löngum kallað „á Gerðinu."
Börn þeirra lijóna eru 2: Ingibjörg, húsfr. á Sauðárkróki og Árni,
býr með móður sinni í Krithólsgerði.
Björn Árnason var frekar lágur maður vexti en þrekinn vel, and-
litsfríður og sviphreinn. Hann var fátækur jafnan og vanheill um
langt skeið, en hvorugt lét liann fyrir standa einstakri glaðværð og
góðfýsi. Hann var vel greindur, skemmtinn í orðræðu, kunni vel
að láta „vínið andann hressa“ á góðri stund, hagmæltur í betra
lagi en fór dult með, söngmaður góður og hestamaður. Hann var
vandaður maður o? oóður drengur.
o o o
Björn Arnason.