Glóðafeykir - 01.12.1969, Blaðsíða 31

Glóðafeykir - 01.12.1969, Blaðsíða 31
GLÓÐAFEYKIR 31 Ekki var ég nú neitt ánægður yfir þ\í starfi til að byrja með. Ég rölti af stað á eftir þeim grenjandi og kom heim með þær grenjandi. Soffía systir var með mér þrjár fyrstu næturnar til þess að setja mig inn í starfið. Eitt sinn kom það fyrir, ég held það hafi verið um það bil viku eftir að ég byrjaði hjásetuna, að yfir skall sótþoka. Ég fór samt með ærnar út í Hlíðina en hélt þeim þó frá ánni, því að þar var hey. Ærnar lögðust um nóttina og þá skreið ég upp á stóran stein, því að hvergi var hægt að setjast í grasið fyrir bleytu. Og þarna á steininum sofnaði ég. Þegar ég svo hrökk upp voru allar æmar horfnar. Ég reyndi að rekja slóðirnar í blautu gxasinu, en allt kom fyrir ekki. Sá ég fljótlega að útilokað var að ná þeim saman með þessu móti, svo að ég tók það til bragðs, að siga hundinum út í þok- una eins og ég væri að smala, og rölti svo þannig heim á leið. Þegar heim kom kastaði ég tölu á ærnar og vantaði mig þá aðeins tvær, Stórhyrnu og Síðklædd, en þær vantaði líka kvöldið áður, svo að ég hafði engum týnt í þokunni og þóttist heldur góður. Pabbi var að klæða sig þegar ég kom í bæinn. Hann spurði hvort ærnar væru allar. Ég svaraði sem var, að tvær vantaði. „Varstu kannski með þær í Stekkjarhúsunum í nótt?“ spurði hann. Ég hálf-reiddist, því að mér fannst í þessu felast aðdróttun um að ég hefði svikizt um að halda ánum til beitar, svo að ég svaraði því, að hann skyldi líta inn í hús- in. Vissi sem var, að ekki var liægt að hýsa ærnar án þess að það sæist á húsunum. Hr því að ég er farinn að tala um hjásetuna, má ég til með að segja þér, — þú þarft ekkert að skrifa það, — að einhver ógleyman- legasta og fegursta sýn, sem ég hef augum litið, bar fyrir mig þegar ég stundaði hana. Þegar ég fór af stað með ærnar um kvöldið var ákaflega blítt veður. Ró og friður hvíldi yt'ir öllu. Æmar dreifðu úr sér, því að ég hnappsat þær aldrei. Ég settist á lækjarbakka. Ég sat oft við lækina. Þeir sungu svo vel. Þeir sungu oft fyrir mig ljóðin ltans Kristjáns Fjallaskálds. Það var unun mín í einverunni á nótt- unni að heyra lækina syngja. Og þeir sungu aldrei sama lagið. Það var annað í kvöld en í gærkvöldi. Og þetta kvöld fannst mér söngur- inn fegurri en nokkru sinni fyrr. Það var í honum meiri fögnuður. Þegar ég taldi komið lágnætti fór ég að tína ærnar saman með að- stoð héppa, sem var þægur, eftirlátur og hlýðinn. Brátt voru allar ærnar lagstar og ég tók að maula nestið mitt, sem ævinlega var bæði nóg og gott, ekki skorti það. Lagði mig svo út af hjá einni ánni, sem hét Mannýg, en svo var hún nefnd af því að hún átti til að hnippa ónotalega í þá, sem ekki vildti kjassa hana og gæla við hana, þegar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Glóðafeykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.