Glóðafeykir - 01.12.1969, Blaðsíða 41

Glóðafeykir - 01.12.1969, Blaðsíða 41
GLÓÐAFEYKIR 41 Gaf Gilsi sér ekki tíma til að heilsa Magnúsi en segir: „Komdu undir- eins niður í Grafarós, hann Siggi er að rifna.“ Þarna lá ég nú í svæs- inni lungnabólgu og var í viku á milli heims og heljar, lengst af með óráði, og var ekki hugað líf. Magnús læknir kom til mín flesta daga. Tvær stúlkur úr Hofsósi vöktu til skiptis yfir mér. Hefur það víst ekki verið skemmtilegur starfi, því að ég stóð alltaf í manndrápum í óráðinu. Eina nóttina fór Helga frá Naustum, önnur stúlkan, sem yfir mér var, lit og vissi ég að hún fór til þess að biðja Hallgrím að vera hjá mér meðan ég skildi við. Og mér var svo sem alveg sama. Hafði orðið enga lífslöngun. Hallgrímur kom og segir: „Líður þér illa?“ „Nei, vel,“ svara ég og það var alveg satt. Mér fannst mér bara líða vel. Og þetta var byrjunin á batanum. Eftir 6 vikur frá því að ég lagðist leyfði Magnús læknir mér að fara. En lengra en í Ósland mátti ég ekki fara fyrsta daginn, og þó því aðeins þangað, að ég hefði hest. Þaðan komst ég í Hóla og heim náði ég rétt fyrir jól. Magnús læknir sendi mér koníaksflösku með orðum um að fá mér eitt koní- aksstaup kvölds og morgna. Ég kveið því nokkuð, að mér mundi reynast örðugt að greiða læknishjálpina, því að peningaráð hafði ég engin önnur en aurana fyrir hina stuttu og endasleppu vinnu á Höfðaströndinni. En hér reyndist allur kvíði ástæðulaus, því að reikningur Magnúsar læknis hljóðaði upp á einar 7 kr., sem var nánast ekki neitt fyrir alla þá hjálp, sem hann var búinn að veita mér. Frá öðru atviki, sem snerti viðskipti okkar Magnúsar, vil ég gjarn- an skýra. Ég var þá fluttur til Skagafjarðar, en skrapp norður í Svarf- aðardal. Mig minnir að það væri á góu 1920. Tíð var góð, svo að mér datt í hug að skjótast norður og heilsa upp á pabba og mömmu. Daginn, sem ég lagði af stað heimleiðis, fór ég aðeins frá Hnjúki og fram að Dæli. Þaðan fór ég um fótaferðatíma morguninn eftir. Rögn- valdur bróðir bað mig fyrir skilaboð í Mela. Er þangað kom var eng- inn vaknaður í bænum, svo að ég fór á glugga og vakti upp. Nokk- ur bið. líklega allt að hálftími, varð samt á því, að Hallgrímur kæmi fram. Töluvert mikið frost var en logn og hreinviðri, og með því að ég var heitur af göngunni setti að mér meðan ég beið. Ég skil- aði boðunum og hélt svo rakleitt áfram í Klaufabrekknakot til Jó- hanns bróður. Þar borðaði ég. Jóhann fylgdi mér á hesti fram undir heiði. Ég hafði skíði meðferðis en dró þau oftast, því að hjarn var á og ekki skíðafæri. Þegar upp að Heljardalsheiðinni kom, fann ég að ég var að verða lasinn og tók að hugleiða, hvað nú skyldi gera. (Framhald á bls. 44)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Glóðafeykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.